Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir færslu Donald Trump, þar sem Ísland var sýnt undir bandaríska fánanum, algjörlega óviðeigandi. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir undirtón færslunnar fáránlegan og hana móðgun við Íslendinga, Kanadamenn og Grænlendinga. Bandaríski sendiherrann var kallaður á fund vegna málsins.
„Þetta er ekki grín að mínu mati. Og ef þetta á að vera grín þá er þetta lélegt grín,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um samfélagsmiðlafærslu Donald Trump Bandaríkjaforseta þar sem Ísland, og fleiri lönd eins og Grænland og Kanada, var sýnt undir bandaríska fánanum.
Bandaríski sendiherrann á Íslandi var kallaður á fund utanríkisráðherra vegna færslunnar. Þorgerður sagði á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar að honum hefðu verið færð skýr skilaboð um að færslan væri „algjörlega óviðeigandi“.
„Mér hefur verið bent á, meðal annars ítrekað innan úr bandarískri stjórnsýslu, að við eigum kannski ekki að taka núverandi Bandaríkjaforseta bókstaflega en við eigum að taka honum alvarlega. Og það er nákvæmlega það sem við erum að gera,“ sagði Þorgerður.
Hún sagði Ísland fullvalda og sjálfstætt ríki sem réði sjálft sínum örlögum. „Það eru ekki aðrir sem geta höndlað með okkar sjálfstæði eða fullveldi. Við gerum það á okkar forsendum.“
„Móðgun við Íslendinga“
Kristrún …