Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og barna- og menntamálaráðherra, halda blaðamannafundinn í Ráðherrabústaðnum.
Þrátt fyrir að kynna helstu málin verður þingmálaskráin ekki birt opinberlega fyrr en við stefnuræðu forsætisráðherra annað kvöld. Fundurinn hófst klukkan níu og var Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður Vísis, á staðnum.
Fjárlagafrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra var kynnt í gær þar sem gert er ráð fyrir fimm milljarða afgangi. Ráðherrann sagði að um væri að ræða fyrstu hallalausu fjárlögin frá árinu 2018.
Ef vaktin birtist ekki hér fyrir neðan er ráð að endurhlaða síðuna.