Formenn stjórnarflokkanna kynna í dag helstu þingmál ríkisstjórnarinnar á þingvetrinum sem er að hefjast. Þar kemur fram hvaða frumvarpa og þingsályktana er að vænta frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar þennan veturinn.
Ríkisstjórnin ætlar að leggja fram 133 lagafrumvörp, 17 þingsályktunartillögur og 9 skýrslur ráðherra. 23 málanna eru endurflutt frá fyrri þingum og 27 eru innleiðingar sem tengjast EES-samningnum, þeim innleiðingum fjölgar um 50 prósent frá síðasta löggjafarþingi.
Bókun 35 og sanngirnisbætur
Forystukonur ríkisstjórnarinnar gera grein fyrir ýmsum þingmálum sem verða lögð fram í haust. Þeirra á meðal er bókun 35 sem hefur áður komið til kasta Alþingis en ekki verið afgreidd. Þorgerður Katrín Gunnardóttir utanríkisráðherra sagði að þetta væri mikið réttindamál fyrir heimili og fyrirtæki. Einnig verður lagt fram frumvarp forsætisráðherra um sanngirnisbætur og frumvarp fjármálaráðherra um minna vægi verðtryggingar.
Dómsmálaráðherra leggur fram frumvörp um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og um heildarendurskoðun á veitingu dvalarleyfa.
Mennta- og barnamálaráðherra leggur fram heildarlög um barnavernd og frumvarp til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum og 15 ára aldurstakmark.
Félags- og húsnæðismálaráðherra leggur fram frumvarp um einföldun skipulagslaga og byggingareglugerðar, auk frumvarps um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði að mánaðarlegar hækkanir húsaleigu yrðu bannaðar, hér eftir mætti aðeins hækka hana einu sinni á ári.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggur fram frumvörp til að liðka fyrir og flýta uppbyggingu flutningskerfis raforku, því lýsa stjórnarliðar þannig að höggva eigi á raforkuhnútinn á Vestfjörðum.
Útlendingar vilja fjárfesta í innviðum
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að haldið yrði áfram með vegaframkvæmdir og heilbrigðismál. Í næstu viku er fjárfestadagur innviðafélagsins Göng og brú. Þangað koma stórir erlendir aðilar sem hafa áhuga á að taka þátt í uppbyggingu verkefna, sagði hún.
Eftir áramót ætlar forsætisráðherra að leggja fram bandorm um einföldun regluverks á ýmsum sviðum, dómsmálaráðherra leggur fram heildarendurskoðun á brottvísunum, frávísunum og endursendingum og félags- og húsnæðismálaráðherra leggur til að lögfest verði viðurlög við brotum á lágmarkskjörum launafólks.
Einnig á að sameina Náttúruminjasafn Íslands, Náttúrufræðistofnun og Náttúrustofu og sameina á stofnanir og verkefni á sviði viðskipta, samkeppnis- og neytendamála.