Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um myndbirtingu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta þar sem hann birti kort af Bandaríkjunum, ásamt Kanada, Grænlandi, Íslandi og Mið-Ameríku öll þakin bandaríska fánanum og litum hans.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund í kjölfar myndbirtingarinnar og sagðist hafa sett fram skýr skilaboð af hálfu Íslands að myndbirtingin hafi verið algjörlega óviðunandi.
Flestir miðlar fjalla um að utanríkisráðherra hafi tekið sendiherra Bandaríkjanna á teppið og vitna í íslenska fréttir RÚV af málinu.
Bandaríski fjölmiðillinn NBC News tekur fram að hann hafi haft samband við sendiráð Bandaríkjanna í Kaupmannahöfn í Danmörku og hér á Íslandi og ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Nuuk á Grænlandi. Fjölmiðillinn hafi einnig haft samband við utanríkisráðuneytið en hafi ekki fengið svör frá neinum þeirra.
Breski fjölmiðillinn The Independent segir diplómatíska spennu hafa aukist þegar utanríkisráðherra hafi kallað sendiherrann á teppið í gær eftir myndbirtinguna. Fjölmiðillinn myndbirtinguna fáránlega.
Flestir miðlar nefna að Trump hafi birt kortið eftir að Grænland, Danmörk og Evrópusambandið undirrituðu samning um 200 milljón evra fjárfestingu á Grænlandi.
Evrópski fjölmiðillinn Euronews segir myndbirtinguna og ásælni Trumps í Grænland prófstein á samband Bandaríkjanna og Íslands.
Norrænu fjölmiðlarnir fjalla einnig um málið og bæði DR og NRK fjalla um viðbrögð forsætisráðherra og utanríkisráðherra síðan í morgun.
SVT í Svíþjóð býður einnig upp á örskýringu um málið.