Ísland utan ESB – Hverjir eru kostirnir?

Ísland utan ESB – Hverjir eru kostirnir?

Ísland utan ESB – Hverjir eru kostirnir?

Ísland utan ESB – Hverjir eru kostirnir?

FréttinAðsend grein, Erlent, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment

Júlíus Valsson skrifar:

Nú liggur fyrir að meirihluti Íslendinga vill ekki hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Þau úrslit hljóta að vekja spurningar um þær upplýsingar sem íslensk stjórnvöld veittu ráðamönnum sambandsins fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Stækkunarstjóri ESB virðist hafa talið að hér væri almennur vilji til að endurvekja aðildarumsóknina, en þjóðin var annarrar skoðunar.

Hvers vegna ætti Ísland að standa utan ESB og hvaða kostir fylgja þeirri stöðu?

Fullveldi og lagasetningarvald

Utan sambandsins heldur Alþingi löggjafarvaldi á þeim sviðum sem EES-samningurinn nær ekki yfir. Innan EES getur Ísland hafnað því að taka nýja gerð upp í samninginn, þótt slík ákvörðun geti haft afleiðingar fyrir viðkomandi hluta hans.
Við aðild yrði forgangur Evrópuréttar bindandi og dómstóll ESB hefði úrslitavald um túlkun hans. Synjunarvald forseta samkvæmt 26. gr. stjórnarskrárinnar hefði lítið vægi gagnvart reglum sem leiddu af aðildinni. Ísland fengi líklega lágmarksfjölda fulltrúa á Evrópuþinginu, eða 6 af þeim 720 (0,8%) sem þar sitja nú, og áhrif landsins í ráðherraráðinu yrðu takmörkuð þegar ákvarðanir væru teknar með auknum meirihluta.

Kjarni fullveldisins felst í raunverulegu valdi ríkisins til að setja sjálft sín eigin lög, breyta þeim og hafna reglum sem ganga gegn hagsmunum þjóðarinnar.

Sjávarútvegur og orkuauðlindir

Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB felur í sér sameiginlega stjórnun fiskveiða. Ráðherraráðið ákveður árlega heildarafla og úthlutar kvótum til aðildarríkjanna á grundvelli tillagna framkvæmdastjórnarinnar.

Við aðild hefði Ísland þurft að semja um stöðu sjávarútvegsins innan þess kerfis. Þótt hægt væri að leita sérlausna yrðu þær að samrýmast stofnsáttmálum og löggjöf sambandsins. Þar væri mikið í húfi, enda eru fiskimiðin ein verðmætasta endurnýjanlega auðlind þjóðarinnar. Engar varanlegar undanþágur eru í boði ESB.
Sama á við um orkumálin. Ísland tekur þegar upp stóran hluta orkulöggjafar ESB í gegnum EES-samninginn, en full aðild myndi þrengja svigrúmið enn frekar. Ákvarðanir um raforkumarkað, sæstreng og nýtingu vatnsafls og jarðhita gætu í vaxandi mæli ráðist af sameiginlegum reglum sambandsins. Með því að standa utan ESB varðveitir Ísland meiri stjórn á auðlindum sínum, þar á meðal hugsanlegum jarðefnum þ.m.t. olíu á landgrunninu.

Viðskiptafrelsi og samningsfrelsi

Sameiginlega viðskiptastefnan er á forræði ESB. Aðildarríkin geta því ekki gert sjálfstæða fríverslunarsamninga á þeim sviðum sem falla undir hana.

Ísland hefur hins vegar gert fjölmarga slíka samninga fyrir milligöngu EFTA, meðal annars við Bretland, Kanada, Kína og Suður-Kóreu. Þessi staða gerir landinu kleift að leggja áherslu á eigin útflutningshagsmuni og haga viðskiptasamböndum sínum eftir aðstæðum.
Sveigjanleikinn getur reynst mikilvægur þegar viðskiptadeilur koma upp milli stórvelda. Ísland getur rætt beint við Bandaríkin, Bretland og ríki Asíu án þess að þurfa að fylgja gagnaðgerðum sem mótast fyrst og fremst af hagsmunum stærstu ríkja Evrópu. Jafnframt tryggir EES-samningurinn víðtækan aðgang að innri markaði ESB fyrir vörur og þjónustu.

Peningastefna og efnahagslegt sjálfstæði

Nýjum aðildarríkjum ber að stefna að upptöku evrunnar þegar þau hafa uppfyllt skilyrðin. Danmörk er eina ríkið sem hefur varanlega undanþágu samkvæmt sáttmálunum, þótt ekkert ákveðið tímamark gildi um evruupptöku annarra ríkja.

Íslenska krónan er sveiflukennd og íslensk peningastefna hefur ýmsa galla. Eigin gjaldmiðill gerir þó kleift að bregðast við séríslenskum áföllum í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og útflutningi. Gengið getur tekið hluta aðlögunarinnar þegar efnahagslífið verður fyrir áfalli. Innan evrusvæðisins þarf hún fremur að eiga sér stað með breytingum á útgjöldum, launum og atvinnustigi. Það er ekki tilviljun að hvorki Danmörk, Svíþjóð, Tékkland, Pólland, Rúmenía né Ungverjaland hafa tekið upp evru. 

Utan ESB ber Ísland heldur enga beina ábyrgð á sameiginlegum lántökum sambandsins eða framlögum í sjóði þess, m.a. lífeyrissjóði, sem flestir eru fjárþrota eða á hausnum. Ísland ákveður sjálft hvernig opinberum fjármunum er varið og hvort það tekur þátt í alþjóðlegum stuðningsverkefnum.

Staða gagnvart valdablokkum

ESB hefur á undanförnum árum stefnt að auknu samstarfi aðildar ríkjanna á sviði utanríkis-, öryggis- og varnarmála. Ísland getur sjálft byggt varnir sínar á aðildinni að NATO og varnarsamningnum við Bandaríkin, en jafnframt mótað eigin afstöðu til mála sem falla utan þeirra skuldbindinga.

Sjálfstæð rödd skiptir máli þegar hagsmunir Evrópu og Bandaríkjanna fara ekki saman, til dæmis í viðskiptum, tækni eða varnarmálum. Eyríki sem byggir afkomu sína á utanríkisviðskiptum þarf að geta brugðist hratt við breyttum aðstæðum og rætt milliliðalaust við helstu samstarfsríki sín.

Norðurslóðir og landfræðileg staða

Landfræðileg staða Íslands hefur lengi verið vanmetin. Grænland stendur utan ESB þótt Danmörk fari með utanríkis- og öryggismál þess. Ísland er sjálfstætt aðildarríki Norðurskautsráðsins og situr þar við sama borð og Bandaríkin, Kanada, Rússland og önnur Norðurlönd.

Með opnun nýrra siglingaleiða, vaxandi hernaðarumsvifum og auknum áhuga á auðlindum norðursins verður lega Íslands sífellt mikilvægari. Landið er hlið milli Norður-Ameríku, Evrópu og Norður-Íshafsins. Sjálfstæð staða auðveldar því að semja beint um hafnir, fjarskiptatengingar, leitar- og björgunarþjónustu, rannsóknir og öryggismál. Innan ESB þyrfti afstaða Íslands oftar að rúmast innan sameiginlegrar stefnu ríkja sem hafa mjög mismunandi hagsmuni á norðurslóðum.

Aðrir kostir

Smæð íslenska stjórnkerfisins getur auðveldað hraðar ákvarðanir og löggjöf sem tekur mið af staðháttum. Alþingi heldur jafnframt stjórn á landbúnaðarstefnu, matvælaöryggi og þeim innflutningsreglum sem standa utan EES-samningsins.

Ísland hefur einnig getað nýtt sjálfstæða stöðu sína sem fundarstaður og milligönguaðili. Leiðtogafundurinn í Reykjavík árið 1986 er þekktasta dæmið. Trúverðugleiki slíks hlutverks byggist meðal annars á því að landið tali eigin rödd í alþjóðamálum.

Gagnrökin

Talsmenn ESB-aðildar benda á að Ísland taki þegar upp fjölmargar reglur sambandsins í gegnum EES án þess að hafa atkvæðisrétt við setningu þeirra. Þeir telja evruna geta stuðlað að lægri vöxtum og meiri stöðugleika, auk þess sem stórt ríkjasamband veiti smáríki skjól gegn þrýstingi stórvelda. Einnig hafi ESB meiri samningsstyrk í alþjóðaviðskiptum en EFTA-ríkin hvert fyrir sig.

Þessi sjónarmið eiga rétt á sér. Spurningin snýst að lokum um hvort Íslendingar telji meira virði beina þátttöku í ákvörðunum ESB gegn því að lúta niðurstöðunni eða áframhaldandi svigrúm til að móta eigin stefnu, þrátt fyrir smæð landsins. En styrk íslands og Íslendinga sem þjóðar má aldrei vanmeta.  

Niðurstaða

Helstu kostir þess að Ísland standi utan ESB felast í stjórn yfir fiskimiðum og orkuauðlindum, sjálfstæðri löggjöf, eigin gjaldmiðli og frelsi til að gera viðskipta- og samstarfssamninga eftir íslenskum hagsmunum. Við bætist sterk staða landsins á norðurslóðum og möguleikinn á að móta utanríkisstefnu án þess að hún þurfi ávallt að fylgja sameiginlegri línu 27 ríkja.

Smáríki getur sjaldnast keppt við stórveldi að mannafla eða fjármagni. Styrkur Íslands liggur fremur í auðlindunum, menningunni, sögunni, legunni og hæfileikanum til að bregðast hratt við. Með því að standa utan ESB varðveitir þjóðin þetta svigrúm og ber um leið sjálf ábyrgð á því hvernig það er nýtt.

Áfram Ísland!

#eru #esb #hverjir #utan #ísland


Upprunaleg slóð:
https://frettin.is/2026/09/08/island-utan-esb-hverjir-eru-kostirnir/

📰 Aðrar fréttir

Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
📅 24.10.2026 👁️ 1
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
Lögreglan í West Midlands á Englandi handtók 15 ára dreng á heimili hans í Walsall 3. ágúst eftir að leiðtogi Íhaldsmanna í borgarstjórn Wolverhampton...
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
📅 24.10.2026 👁️ 1
Vildu dæma og taka sakamenn af lífi samdægurs
Réttarfar var með öðrum hætti á Íslandi á fyrri öldum. Á 18. og 19. öld var fólk sent til afplánunar í fangelsi í Kaupmannahöfn enda ekkert fangelsi á...
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Vilja hækka samræðisaldur - Vísir
Ný stjórn Ungra Vinstri grænna fundaði í fyrsta skipti í gær en Ari Orrason var kjörinn formaður ungliðahreyfingarinnar um miðjan mánuð. Það vakti ath...
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
📅 24.10.2026 👁️ 1
Íslenski lagerstjórinn sem kemur fram í hverri stórmyndinni á fætur annarri
Það eru margar stjörnur og kunnugleg andlit í kvikmyndinni Brink of War sem er nú í sýningum í kvikmyndahúsum landsins. Eitt kunnuglegu andlitanna er ...
Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Telja brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta - Vísir
„Vestfirðir eru víðfeðmt og krefjandi starfssvæði þar sem miklar vegalengdir, erfiðar samgöngur og veðurfar gera oft og tíðum miklar og sérhæfðar kröf...
Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers - Vísir
Í umfjöllun Bild er haft eftir lögreglumanni að mikið tjón hafi orðið á húsinu og ólíklegt sé að hægt verði að bjarga því. Brunavarnarkerfi hafi farið...
Fyllir auð sæti í minningu besta vinar síns
📅 24.10.2026 👁️ 1
Fyllir auð sæti í minningu besta vinar síns
Sagan af Dean Perryman, hreyfingunni hans og vininum Rob rataði til Heimskviða gegnum einhvern samfélagsmiðilinn. Sagan var uppbyggileg og falleg þó a...
Þurfti að vara syni sína við eftir um­fjöllun um meintan eltihrelli - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Þurfti að vara syni sína við eftir um­fjöllun um meintan eltihrelli - Vísir
Þetta segir Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni, þegar hann rifjar upp hvernig umfjöllun hans um mál Írisar Helgu Jónatansdóttur fór að hafa áh...
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu
📅 24.10.2026 👁️ 3
Pezeshkian hittir Pútín í Moskvu
Forseti Íran, Massoud Pezeshkian, fer til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í næstu viku til fundar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Íranskur ríkismi...
Missing wheel helps police solve hit-and-run case in south Tenerife
📅 24.10.2026 👁️ 2
Missing wheel helps police solve hit-and-run case in south Tenerife
A wheel left beside the road has helped the Guardia Civil trace a driver suspected of leaving a seriously injured moped rider without assistance after...
Lægðar­drag á leiðinni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lægðar­drag á leiðinni - Vísir
„Suður í hafi er víðáttumikil og djúp lægð á leið austur og verður hún yfir Skotlandi í kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Ísland...
SATURDAY WEATHER: Sunshine in southern resorts as trade winds strengthen
📅 24.10.2026 👁️ 2
SATURDAY WEATHER: Sunshine in southern resorts as trade winds strengthen
The Canary Islands can look forward to sunny spells and warm coastal temperatures today, Saturday 24th October, although northern areas will remain cl...
Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds - Vísir
Kristín Hulda starfar sem sálfræðingur og Stefán sem rafiðnfræðingur en þau eru bæði 31 árs og hafa verið saman í rúm tvö ár. Kristín ræddi við blaðam...
Friður ekki í augsýn í Súdan
📅 24.10.2026 👁️ 4
Friður ekki í augsýn í Súdan
Stríðið í Súdan hefur stigmagnast undanfarnar vikur og friður er ekki í augsýn.Bæði súdanski herinn og RSF-uppreisnarherinn nota í auknum mæli dróna í...
Sverrir um Jasminu: „Jasmína flúði fjölmenninguna“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Sverrir um Jasminu: „Jasmína flúði fjölmenninguna“
Sverrir Helgason segir Jasminu Vajzović Crnac hafa flúið fjölmenninguna í Bosníu og vísar til landsins sem dæmis um að fjölmenningarstefna gangi illa....
Frétta­tía vikunnar: MS, þungunar­próf og glaum­gosi - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Frétta­tía vikunnar: MS, þungunar­próf og glaum­gosi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál
📅 24.10.2026 👁️ 4
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál
Mynd Erfðamál eru viðkvæm og valda iðulega deilum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
📅 24.10.2026 👁️ 4
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði L...
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi
📅 24.10.2026 👁️ 4
56.000 heimili rafmagnslaus eftir fellibylinn Champi
Yfir 56 þúsund heimili eru rafmagnslaus í Taívan eftir að fellibylurinn Champi fór þar yfir í gær. Einn lést og yfir fimm hundruð hafa slasast af völd...
US midterms: The rise of AI election ads in US midterms campaign
📅 24.10.2026 👁️ 1
US midterms: The rise of AI election ads in US midterms campaign
BBC Verify has tracked dozens of AI ads to assess how they are being used by campaigns in the midterms.
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía
📅 24.10.2026 👁️ 5
Annað dauðsfall af völdum ebólu í Kenía
Heilbrigðisyfirvöld í Kenía hafa tilkynnt um annað dauðsfall af völdum ebólu. Hin látna, kona á sjötugsaldri, var skyld manni sem lést af völdum ebólu...
France prepares for day of protest a week after nationwide riots
📅 24.10.2026 👁️ 4
France prepares for day of protest a week after nationwide riots
More than 70,000 police officers are to be deployed over fears protesters will defy restrictions on demonstrations.
Arrest made after fire at Hitler's Eagle's Nest retreat
📅 24.10.2026 👁️ 3
Arrest made after fire at Hitler's Eagle's Nest retreat
Around 200 emergency personnel are deployed to fight the blaze at the Nazi dictator's Alpine residence in Germany.
Arrest made after fire at Hitler's mountaintop Eagle's Nest retreat
📅 24.10.2026 👁️ 2
Arrest made after fire at Hitler's mountaintop Eagle's Nest retreat
Around 200 emergency personnel are deployed to fight the blaze at the Nazi dictator's Alpine residence in Germany.
Met investigates reports of letter detailing claims about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 5
Met investigates reports of letter detailing claims about Meghan's father
Scotland Yard opens an inquiry after the Duchess of Sussex said she was sent a letter containing "disturbing allegations".
Eldur í Arnarhreiðri Hitlers
📅 24.10.2026 👁️ 4
Eldur í Arnarhreiðri Hitlers
Mikill eldur braust út í Arnarhreiðrinu, sumardvalarstað Adolfs Hitlers í Bæjaralandi í Þýskalandi, um klukkan níu í gærkvöld að staðartíma. Enn er ba...
Tory activist in 'contract killing broker' claim had worked for party HQ
📅 24.10.2026 👁️ 4
Tory activist in 'contract killing broker' claim had worked for party HQ
Jack Ross was contracted to do social media work for the party until earlier this year, the BBC has been told.
Storm Boelo: Second storm to hit UK with amber warning issued for strong wind
📅 24.10.2026 👁️ 5
Storm Boelo: Second storm to hit UK with amber warning issued for strong wind
An amber weather warning has been issued for much of Scotland, parts of Northern Ireland and northern England, as Storm Boelo approaches.
Mótmæli boðuð í átta borgum í dag
📅 24.10.2026 👁️ 4
Mótmæli boðuð í átta borgum í dag
Hreyfing mótmælenda á Ítalíu sem kennir sig við 17. október hefur boðað til mótmæla í átta borgum á Ítalíu í dag, meðal annars Róm og Mílanó. Stúdenta...
Australian MP Helen Haines' condition improves after alleged car attack
📅 24.10.2026 👁️ 4
Australian MP Helen Haines' condition improves after alleged car attack
The Independent MP is now in a serious but stable condition, according to the Melbourne hospital.
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sjö saknað eftir að háhýsi hrundi til grunna
Að minnsta kosti sjö er saknað eftir að sextán hæða háhýsi hrundi til grunna í Naíróbí, höfuðborg Kenía í gær. Háhýsið er í Eastleigh-hverfinu, sem er...
Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ingvar mótfallinn breytingum á Loftbrú
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, er mótfallinn breytingu ríkisstjórnarinnar á fyrirkomulagi Loftbrúar eins og hún var kyn...
UK to invest £100m in 'world first' AI Biosecurity Lab
📅 24.10.2026 👁️ 4
UK to invest £100m in 'world first' AI Biosecurity Lab
The chancellor will unveil AI spending aimed at shoring up the UK's defences in Wednesday's Budget.
Þetta þarf Margrét að borga fyrir að „móðga dómara“ – Reikningurinn barst kl. 18 og frestur gefinn til miðnættis
📅 24.10.2026 👁️ 4
Þetta þarf Margrét að borga fyrir að „móðga dómara“ – Reikningurinn barst kl. 18 og frestur gefinn til miðnættis
Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, var í sumar fundin sek um ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Var henni gert að gre...
How to heat your home without turning on the heating
📅 23.10.2026 👁️ 3
How to heat your home without turning on the heating
Make draught excluders from socks, leave your oven door open after cooking and opt for lots of thin layers of clothing to stay warm.
Vopnakapphlaup á Kóreu­skaga - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
Vopnakapphlaup á Kóreu­skaga - Vísir
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur sent allt að tólf þúsund þegna sína til Rússlands. Þar er þetta fólk sagt vinna við að setja saman drón...
Strictly Come Dancing's new hosts: Flat-footed or fab-u-lous?
📅 23.10.2026 👁️ 3
Strictly Come Dancing's new hosts: Flat-footed or fab-u-lous?
Josh Widdicombe, Emma Willis and Johannes Radebe have split opinion but are getting into the groove, critics say.
Are California voters about to impose 'world's first' tax on billionaires?
📅 23.10.2026 👁️ 3
Are California voters about to impose 'world's first' tax on billionaires?
Voters are about to decide if the mega-rich among them should hand over billions of dollars to pay for improvements to healthcare.
Ruins of city hall a symbol of France divided by protests
📅 23.10.2026 👁️ 3
Ruins of city hall a symbol of France divided by protests
Younger Limoges residents see the destruction of their town hall as unfortunate collateral damage in a wider movement. For others, the fire was an una...
Jazzy: The Irish DJ dropping her debut after a billion streams
📅 23.10.2026 👁️ 1
Jazzy: The Irish DJ dropping her debut after a billion streams
Irish DJ Jazzy came up on the Dublin club scene and has worked with industry heavyweights like Calvin Harris.
Höfðatorgsmálið: Sagðir hafa boðið háar fjárhæðir fyrir falskar játningar og óvænt vitni vakti furðu
📅 23.10.2026 👁️ 3
Höfðatorgsmálið: Sagðir hafa boðið háar fjárhæðir fyrir falskar játningar og óvænt vitni vakti furðu
Lögreglu bárust í vor upplýsingar um að tveir sakborningar í Höfðatorgsmálinu svokallaða, þeir Kareem M. M. Abufarhah og Mohamed Sayidali Ahmed, hefðu...
Celebrity Traitors, episode eight: Series left on a knife edge after a trip to the field of screams
📅 23.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors, episode eight: Series left on a knife edge after a trip to the field of screams
A newly earned special power left one contestant with a powerful decision to make in Friday's episode.
Father who killed Oregon school shooter describes anguish over children he couldn't save
📅 23.10.2026 👁️ 4
Father who killed Oregon school shooter describes anguish over children he couldn't save
Kaylub Giamanco, has been hailed as a hero for killing a teenager who fatally shot three children and a teacher.
Father who killed Oregon school gunman describes anguish over children he couldn't save
📅 23.10.2026 👁️ 2
Father who killed Oregon school gunman describes anguish over children he couldn't save
Kaylub Giamanco, has been hailed as a hero for killing a teenager who fatally shot three children and a teacher.
„Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 4
„Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron - Vísir
BBC fjallar um málið. Að sögn Macron er um að ræða vendipunkt í sögu franska lýðveldisins, en þarna hafi í fyrsta skiptið verið framið handahóskennt d...
Faðir og systir Meghan Markle tjá sig um ásakanirnar - „Þetta er djöfulsins bull. Ekkert nema lygar“
📅 23.10.2026 👁️ 3
Faðir og systir Meghan Markle tjá sig um ásakanirnar - „Þetta er djöfulsins bull. Ekkert nema lygar“
Allt er nú í háalofti hjá föðurfjölskyldu hertogaynjunnar Meghan Markle, en hálfbróðir hennar segist hafa fundið mikið magn af barnaníðsefni meðal eig...
Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum - Vísir
📅 23.10.2026 👁️ 3
Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum - Vísir
Bild greinir frá þessu. Lögreglu grunar að um íkveikju hafi verið að ræða, en þó eru eldsupptök óljós að svo stöddu. Einn hefur verið handtekinn. Slök...
Skotárás sem markar vendipunkt í Frakklandi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Skotárás sem markar vendipunkt í Frakklandi
25 ára karlmaður lét lífið og fimm eru slasaðir eftir að maður skaut úr byssu úr bíl í nágrannabæjum Parísar í dag. Meðal fórnarlambanna er 12 ára stú...
Verslanir farnar að fyllast af hrekkjavökuvarningi
📅 23.10.2026 👁️ 3
Verslanir farnar að fyllast af hrekkjavökuvarningi
Rétt rúm vika er í hrekkjavöku og matvöruverslanir eru víða farnar að fyllast af alls kyns varningi fyrir hátíðina. Markaðsstjóri Bónuss segir innkaup...
Why is John Travolta's old luxury jet in a small Australian town?
📅 23.10.2026 👁️ 5
Why is John Travolta's old luxury jet in a small Australian town?
The BBC goes on board Travolta’s old Boeing 707 which is being reassembled in a small coastal town.