Niðurstöður PISA-könnunarinnar eru sláandi og má segja að netheimar hafi logað eftir að skýrsla þess efnis var opinberuð í morgun. Meðal þess sem kemur í ljós er að aðeins helmingur íslenskra drengja býr yfir grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskólagöngu á móti 62% stúlkna. Námsárangur íslenskra grunnskólabarna hefur aldrei mælst jafn slæmur og nú. Sjá einnig: Árangur íslenskra nemenda heldur áfram að hrynja
„Við erum ekkert síður vel gefin en allir aðrir innan OECD“