Skýrslutökur yfir sakborningum í Höfðatorgsmálinu standa yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem aðalmeðferð fer fram. Þremur mönnum er gert að sök tilraun til manndráps í bílakjallara við Höfðatorg 17. mars síðastliðinn.
Tveir sakborningar eru mættir í dómsal í dag en sá þriðji er erlendis og tekur þátt í gegnum fjarfundarbúnað.
Skýrslutaka yfir fyrsta sakborningnum tók tæpar tvær klukkustundir. Honum er gefið að sök að hafa ekið á brotaþola á mikilli ferð. Hann gekkst við því að hann hefði hvíta Land Roverinn í sinni umsjá og að hafa ekið honum þetta kvöld, en kvaðst ekki hafa ekki ekið bílnum þegar honum var ekið á brotaþola.
Hann sagðist ekki hafa hitt brotaþola áður, að á milli þeirra væru engin tengsl og engin vandamál. Brotaþoli hefði átt í útistöðum við aðra í bílakjallaranum þetta kvöld.
Saksóknari spilaði mynbandsupptökur úr öryggismyndavélum í kjallaranum og þar sást fjöldi fólks á hlaupum, margir grímuklæddir og einhverjir vopnaðir, og fólk sést fara inn og út úr hvíta Land Rovernum sem um ræðir áður en honum var ekið á brotaþola.
Myndbandið var spólað fram og til baka að beiðni sakbornings þegar hann var beðinn að lýsa því og þeim sem fyrir bar. Hann þekkti og bar kennsl á einhverja en aðra ekki.
Hann lýsti því í skýrslutökunni að hópur manna hafi komið og ætlað að ráðast með vopnum á hann og fleiri sem voru daglega í bílakjallarnum. Hann lýsti mikilli ringulreið þetta kvöld og að hann upplifði að það ætti að koma allri sökinni á hann. Hann segist ekki hafa ekið bílnum eða hafa verið á sömu hæð í kjallarnum þegar það gerðist.
Hafi farið í bíl hins sakborningsins fyrir tilviljun
Næst var skýrsla tekin af sakborningnum sem staddur er erlendis og tók þátt í réttarhöldunum í gegnum fjarfundarbúnað. Honum er gefið að sök að hafa barið brotaþola með óþekktu áhaldi eftir að ekið var á hann.
Hann segist hafa farið í bílakjallarann fyrir tilstilli vina sinna sem hafi verið að skutla honum. Hann hafi verið nýr á Íslandi, þekkt fáa og ekki barið neinn. Hann lýsti ringulreið í bílakjallaranum, hann hafi verið hræddur og ekki fundið vini sína sem hann kom með í bílakjallarann. Hann hafi því farið upp í annan bíl sem var á leið út úr kjallaranum.
Sakborningurinn var handtekinn þegar lögregla stöðvaði Land Rover bílinn, sem fyrri sakborningurinn ók, skömmu eftir árásina.
Sakborningurinn sat í gæsluvarðhaldi í þrjá daga en var síðan sleppt úr haldi og dvelur nú erlendis. Hinir sakborningarnir tveir hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan þeir voru handteknir.
Skýrslutaka af þriðja sakborningnum stendur yfir.