„Ég vona að þegar börn okkar og barnabörn líta aftur í tímann muni þau ekki fyrst horfa til þeirra mála sem skiptu okkur í fylkingar heldur hvernig okkur tókst að kveikja í þeim von um veröld betri,“ sagði Halla Tómasdóttir í ræðu sinni við þingsetningu á Alþingi í dag.
Hún hvatti hvatti þingmenn og Íslendinga alla til að velja samtalið, virðinguna og hvert annað.
„Mótum samfélag þar sem fólk getur tekist á um stór mál án þess að glata hvert öðru. Við megum velja ólíkar leiðir en við eigum áfram sömu heimahöfn, Ísland.“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, minntist þriggja ungmenna sem létust í sviplegu slysi á Krýsuvíkurvegi í síðustu viku, í ræðu sinni við setningu Alþingis í dag.
„Slikur missir snertir okkur öll og minnir okkur með sársaukafullum hætti á það sem skiptir mestu máli.“
Samfélagið verði að taka vel utan um börnin og unga fólkið, hlusta á þau og styðja. „Því ekkert segir meira um styrk samfélags en hvernig börnunum okkar og unga fólkinu líður. Hvernig við tökum utan um hvort annað segir líka mikið um það samfélag sem við viljum vera.“
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, flutti einnig ávarp við þingsetninguna. Þjóðaratkvæðagreiðslan var henni hugleikin eins og forsetanum. Þórunn minntist sérstaklega á umræðuna í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna og hættumerki sem birtust þar.
„Svo virðist því miður sem ofstopi og hótanir í garð forystufólks í stjórnmálum sé að verða daglegt brauð. Það vekur eftirtekt að þeir stjórnmálamenn sem helst fá að kenna á slíku framferði eru konur. Mál er að linni. Eigi lýðræðissamfélagið að standa undir nafni, verða þátttakendur í opinni umræðu sem meðal annars fer fram í athugasemdakerfum á vefnum að ráða við verkefnið.“
Þórunn segir undir hverjum og einum komið að leggja til málanna á þessum vettvangi. „Þannig að gagn sé að en ekki skaði.“
Nýafstaðan þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið var Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, ofarlega í huga við þingsetninguna.
„Þótt mjótt hafi verið á munum er niðurstaðan skýr og hana ber að virða. Um leið skulum við sýna skilning á þeim vonbrigðum og sterku tilfinningum sem niðurstaðan vekur hjá mörgum.“
Lýðræðið byggi á því að valdi liggi hjá þjóðinni. „Að almenningur fái tækifæri til að taka afstöðu til stórra og umdeildra mála er ekki merki um veikleika lýðræðisins. Það er merki um styrk þess.“
Íslendingar hafi ástæðu til að treysta sér þar sem við höfum áður tekist á um stór mál og fundið leiðina áfram saman. „Nú horfum við fram á veginn. Nú er spurningin ekki lengur hvernig við greiddum atkvæði heldur hvernig samfélag við veljum að skapa saman.“
Hægt sé að velja að láta ekki hörðustu raddirnar setja tóninn. Íslendingar hafi stundum tilhneigingu til að halda að það sem sameini þjóð sé það að vera sammála en saga þjóðarinnar segi aðra sögu.
„Við höfum aldrei verið sammála um allt. Við höfum tekist á um stór mál frá stofnun lýðveldisins og raunar allt frá stofnun Alþingis. En þegar okkur hefur tekist best til höfum við ekki látið ágreining yfirgnæfa það sem sameinar okkar.“
Þingsetningin hefst á flutningi Sönghópsins við Tjörnina, undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, á Hjá lyngri móðu eftir Jón Ásgeirsson. Bæði lögin sem flutt eru við þingsetninguna eru eftir listamenn sem fengu heiðurslaun frá Alþingi og eru nýlega fallnir frá.
Forseti Íslands, biskup, ráðherrar og þingmenn eru nú komnir aftur inn í Alþingishúsið og hafa tekið sæti í þingsal þar sem Halla Tómasdóttir setur Alþingi.
Lesendur geta spreytt sig á þraut á vefnum og reynt að nefna eins marga þingmenn og þeir geta á 10 mínútum.
Það eru 63 þingmenn frá sex flokkum og einn er utan flokka.
Gettu nú!
Auk Odds Bjarna Þorkelssonar, sóknarprests í Dalvíkurprestakalli, þjónaði Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur Dómkirkjunnar fyrir altari og Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, lýsti blessun. Matthías Harðarson dómorganisti stjórnaði Kammerkór Dómkirkjunnar og lék á orgel.
Guðsþjónustunni er nú lokið og hersingin gengur aftur í Alþingishúsið þar sem Halla Tómasdóttir forsætisráðherra setur 158. löggjafarþingið.
Nokkur fjöldi fólks kom saman á Austurvelli fyrir þingsetninguna. Sjálfsbjörg, landssamband hreyfihamlaðra, var með þriðja Aðgengisstrollið sem er vitundarvakning um aðgengi. Í frétt á vef samtakanna segir að þau hvetji fólk til að mæta með göngugrind, í hjólastól, með staf, á rafskutlu eða með önnur hjálpartæki. Tilgangurinn er að minna á að innleiða greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
„Nú þegar samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks er lögfestur þarf að innleiða greinar hans í lög. Framkvæmd þarf að fylgja lögfestingu,“ segir í fréttinni.
Ragnar Visage, ljósmyndari fréttastofunnar, fylgist með þingsetningunni. Hann tók þessar myndir af forseta Íslands og Alþingis, ráðherrum og þingmönnum ganga fylktu liði til guðsþjónustu í Dómkirkjunni.
Setning Alþingis hófst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 13:30. Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli prédikar, Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur Dómkrikjunnar, þjónar fyrir altari og Guðrún Karls Helgudóttir, biskup lýsir blessun.
Ég heiti Ingibjörg Sara og ætla að fylgja ykkur meðan 158. löggjafarþing okkar Íslendinga er sett.