Maðurinn er sagður hafa lýst yfir ábyrgð á skemmdarverkum í bréfum sem hann sendi. Þar hafi hann haldið því að hann berðist gegn jarðefnaeldsneyti. Reuters-fréttastofan segir að þýsk yfirvöld telji skemmdarverkin tengast „loftslagsöfgahyggju“.
Auk sprengiefnsins sem maðurinn hélt á þegar lögreglumenn handsömuðu hann nærri Weisweiler-orkuverinu fundust fleiri sprengju í tjaldi í nágrenninu. Weisweiler er kolaorkuver sem brennir brúnkolum.
Sami maður er talinn hafa unnið skemmdir á Jänschwalde og Schwarze Pumpe, tveimur brúnkolaorkuverum í Brandenburg og fleiri orkuinnviðum í Norður Rín-Vestfalíu. Hann er sagður koma frá Ruhr-héraði, helsta þungaiðnaðar- og kolasvæði Þýskalands.
Skemmdarverkin ollu ekki víðtæku rafmagnsleysi en aftengja þurfti orkuverin við dreifikerfi tímabundið vegna þeirra.