Olga Tokarczuk, handhafi Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum, kemur til Íslands í þessari viku til að taka við Alþjóðlegu bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness.
Í pólskumælandi hópum á samfélagsmiðlum þar sem Pólverjar búsettir á Íslandi eiga samskipti hafa komið fram fjöldi móðgandi og árásargjarnra athugasemda um Tokarczuk. Sumar þeirra hafa einnig verið ógnandi. Athugasemdirnar voru tilkynntar og í kjölfarið fjarlægðar.
Meðal annars hafa komið fram hótanir um að kasta eggjum í rithöfundinn þegar hún kemur fram opinberlega.
Pólska sendiráðið á Íslandi er upplýst um málið.
Hefur lengi verið gagnrýnd af pólskum hægri öflum
Andstaðan við Tokarczuk er ekki ný af nálinni. Hún hefur um árabil verið gagnrýnd af hluta pólskra hægri afla.
Í fræðigrein Dorotu Kołodziejczyk, prófessors við Háskólann í Wrocław, er fjallað um stöðu Tokarczuk í pólitískri orðræðu hægri popúlista í Póllandi. Þar er meðal annars lýst hvernig hún hefur verið sett fram sem fulltrúi elítu sem sé fjarlæg þeirri þjóðlegu sjálfsmynd sem þessi öfl leggja áherslu á.
Gagnrýnin tengist meðal annars skoðunum Tokarczuk á þjóðernishyggju, réttindum minnihlutahópa, femínisma, umhverfismálum og fjölbreytileika. Hún hefur einnig gagnrýnt þjóðernissinnaða söguskoðun og bent á ofbeldi gegn minnihlutahópum í sögu Póllands.
Mikil umræða skapaðist eftir ræðu sem Tokarczuk hélt þegar hún tók við Nike-bókmenntaverðlaununum í Póllandi árið 2015. Þar gagnrýndi hún meðal annars þá hugmynd að Pólland hefði alltaf verið umburðarlynt samfélag sem hefði ekki beitt minnihlutahópa ofbeldi.
Eftir að tilkynnt var um að hún hlyti Nóbelsverðlaunin árið 2019 hélt gagnrýnin áfram. Hægri sinnaðir fjölmiðlar og stjórnmálamenn hafa meðal annars gagnrýnt skoðanir hennar og alþjóðlega stöðu og sett hana fram sem fulltrúa elítu sem sé fjarlæg þjóðinni.
Pólsk stjórnmálaumræða á samfélagsmiðlum
Á pólskumælandi hópum á samfélagsmiðlum hafa einnig birst mjög hörð og í sumum tilvikum ógnandi viðbrögð við heimsóknum erlendra stjórnmálamanna til Íslands. Þar hefur meðal annars verið brugðist með þessum hætti við fólki sem hefur verið gagnrýnt harðlega af popúlískum stjórnmálaöflum í Póllandi.
Í umræðu um heimsókn Ursula von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, til Íslands í júlí 2025 var meðal annars skrifað:
„Hvar er leyniskyttan? Ég spyr bara...“
„Það er með ólíkindum að hún skyldi ekki detta eins og þessi gaur úr bókaklúbbnum.“
„Hún getur drullað sér héðan, hennar er ekki þörf hér.“
„Fasískt skítseiði.“
„Í poka, og pokinn veit hvert.“
„Ég ætla að henda henni í hraunið, þá verður einu vandamáli færra.“
„Gamla hóran flaug hingað til að eyðileggja hér líka.“
Tokarczuk tekur við Laxness-verðlaununum
Alþjóðlegu bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent í Norræna húsinu í Reykjavík fimmtudaginn 10. september. Tokarczuk hlýtur 15 þúsund evrur í verðlaun auk verðlaunampenings. Þetta er í fimmta sinn sem verðlaunin eru veitt.
Verðlaunin hafa áður verið veitt Ian McEwan, Elif Shafak, Andrei Kurkov og Salman Rushdie. Tokarczuk verður því fimmti rithöfundurinn sem hlýtur verðlaunin.
Tvær bækur Tokarczuk hafa hingað til komið út á íslensku. Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu kom út árið 2022 og Hús dags, hús nætur árið 2025, báðar í þýðingu Árna Óskarssonar. Smásaga eftir Tokarczuk, Dansarinn, birtist einnig í Tímariti Máls og menningar árið 2024 í þýðingu Steinunnar G. Helgadóttur.