Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Fljótaganga. Málið verður formlega tekið upp í bæjarráði á fimmtudag.
Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins segir að framkvæmdir snúi að vatnsbólinu í Hólsdal í innanverðum Siglufirði. Markmiðið sé að tryggja vatnsgæði á framkvæmda- og rekstartíma jarðganganna.
„Sveitarfélagið hefur óskað eftir því að gerðar verði rannsóknir á hvar vatn sé að finna í jörðu og ef það finnst verður borað eftir því. Þetta er öruggasta leiðin til þess að tryggja vatnsöryggi á svæðinu,“ segir í tilkynningunni. Verkefnið verði unnið í samvinnu við Vegagerðina sem tekur þátt í kostnaði.
„Von er á sérfræðingum í vikunni á svæðið til rannsókna. Finnist góð staðsetning má gera ráð fyrir að borað verði á allra næstu vikum.“
Fljótagöng eru efst í forgangsröðun jarðgangaframkvæmda í nýrri samgönguáætlun til ársins 2040 sem var samþykkt í sumar. Þeim er ætlað að leysa Strákagöng af hólmi og veginn um Aleminninga sem hefur sigið mikið síðustu ár.
Göngin eiga að liggja á milli Nautadals í Fljótum og Hólsdals og stytta þau leiðina milli Fljóta og Ólafsfjarðar um 14 kílómetra. Þá stytta þau leiðina á milli Fljóta og Siglufjarðar um 10 kílómetra. Þau verða 5,3 kílómetra löng og þarfnast verkið um 19 km vegagerðar utan ganga.
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við göngin á næsta ári.