Brotaþoli í Höfðatorgsmálinu segist hafa óttast um líf sitt aðfaranótt 17. mars. Þrír menn eru ákærðir fyrir manndrápstilraun gegn honum með því að hafa ekið á hann á miklum hraða, barið hann ítrekað með barefli og stungið hann í rasskinnina.
Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Brotaþoli var kallaður fyrir dóm eftir að sakborningarnir þrír höfðu gefið sína skýrslu.
Brotaþoli kvaðst hafa mælt sér mót við einn sakborninga, þann sem grunaður er um að hafa ekið á hann, í bílakjallaranum þetta kvöld. Hann hafi ætlað að ræða við sakborninginn á rólegu nótunum vegna meints stuldar á peningum gamals vinnufélaga brotaþola, sem hafi beðið hann um aðstoð.
Þegar hann hafi mætt í bílakjallarann ásamt tveimur félögum sínum, sem hann sagðist ekki hafa vitað til að væru vopnaðir, hafi mætt þeim 15 til 20 manna hópur, öskrandi á öðrum tungumálum og með alls konar vopn. Hann hafi strax ákveðið að hlaupa í burtu.
Fljótlega hafi bíl verið ekið á hann með þeim afleiðingum að féll á bakið og skall með hnakkann í jörðina. Það náðist ekki á upptöku en það eru nokkrir blindblettir í öryggismyndavélakerfi bílakjallarans. Brotaþoli segist hafi staðið upp, klifrað upp pall í bílakjallaranum og haldið áfram að hlaupa. Þá hafi bíl verið ekið á hann öðru sinni, af miklu afli.
Hann hafi reynt að koma sér í burtu en þá hafi komið fleiri menn sem hafi veist að honum með bareflum og hnífum.
Brotaþoli segist hafa náð að standa upp og reynt að hlaupa burt, en þá hafi hann verið króaður af af enn fleiri mönnum, sem hafi verið með ýmis vopn og hafi sprautað á hann úr slökkvitæki. Hann hafi loks komist í burt með því að hlaupa niður stiga þegar reykur úr slökkvitækinu var alltumlykjandi. Hann hafi svo hringt í sjúkrabíl.
Gat ekki fullyrt hver hefði gert honum hvað
Verjendur sakborninganna byggja vörn sína að miklu leyti á því að ekki sé hægt að sanna að skjólstæðingar þeirra séu þeir sem hafi ekið á, barið og stungið brotaþola. Brotaþoli gat sjálfur ekki staðfest hverjir voru að verki, enda hefði atburðarásin verið hröð, mennirnir dökkklæddir og margir hefðu hulið andlit sín.
Lögregla handtók á annan tug manna við rannsókn málsins og um tíma höfðu 13 stöðu sakbornings. Rannsóknin var flókin og að endingu voru aðeins þrír ákærðir.
Á upptökum úr öryggismyndavélum sem saksóknari spilaði í dómsal mátti sjá fjölda dökkklæddra manna, suma vopnaða, á hlaupum í bílakjallaranum áður en upptakan sýndi þegar hvítum Land Rover var ekið á brotaþola á miklum hraða.
Upptökur sýna að brotaþoli lenti fyrst ofan á húddi bílsins og kastaðist svo af því. Er hann lenti á jörðinni veittust að honum minnst þrír menn, þar af að minnsta kosti einn með barefli.
Brotaþoli sagðist telja að það hafi verið á þessum tímapunkti sem hann var stunginn í rasskinnina, en það sést ekki almennilega á myndskeiðum úr öryggismyndavél þar sem brotaþoli liggur að hálfu bakvið vegg sem byrgði öryggismyndavélum sýn.
Gekk á brotaþola um raunverulegar ástæður uppgjörsins
Saksóknari málsins gekk á brotaþola um raunverulega ástæðu þess að þeir hefðu hist í bílakjallaranum þessa nótt. Saksóknari sagði gögn málsins benda til misheppnaðra fíknefnaviðskipta milli sakborningsins sem grunaður er um að hafa ekið á brotaþola, og félaga brotaþola sem mætti með honum í bílakjallarann þessa nótt. Nafn þessa manns kom ítrekað upp í skýrslutökunum af sakborningum og brotaþola.
Þá virtist saksóknari ekki telja að alvarleiki árásarinnar væri í samræmi við ágreininginn sem brotaþoli lýsti við upphaf skýrslutökunnar. Brotaþoli tók undir það og sagðist aldrei myndu hafa mætt þarna ef hann hefði vitað hvað væri í vændum.
Brotaþoli sagði afleiðingar árásarinnar alvarlegar. Hann fyndi enn fyrir miklum líkamlegum eymslum og væri í meðferð hjá áfallateymi Landspítalans. Hann óttaðist enn mennina sem réðust á hann og hefði flust búferlum í öruggara húsnæði eftir árásina.