„Þetta er mjög slæm tilfinning, að upplifa það að það sé verið að ráðast á heimili manns og með þessum hætti líka. Ráðherrar og fleiri hafa verið að lýsa hótunum sem þeir hafa fengið í sinn garð en að upplifa svona er skelfilegt.“
Þetta segir Heimir Björn Janusarson garðyrkjufræðingur. Hann er búsettur í Vesturbæ Reykjavíkur ásamt konu sinni, Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðingi. Hjónin eru um sextugt.
Þegar hjónin fóru á fætur í morgun hafði verið reynt að kveikja í heimili þeirra. Eldurinn dó út af sjálfsdáðum.
„Ég vaknaði síðla nætur eða snemma morguns, eitthvað svona um hálf sex leytið, og fann þá rosa skrýtna lykt og fór fram úr og var ekki var við neitt og fór inn í eldhús og þar var ekkert um að vera þannig ég fór bara aftur upp í. Hélt þetta væri bara eitthvað utanaðkomandi af því við vorum með galopinn svefnherbergisglugga,“ segir Heimir Björn.
„Rétt á eftir byrjaði þessi skemmtilegi lúðrablástur úr grænlenskum togara sem hélt manni svona vöku. Svo fór ég bara fram úr og var að fara í vinnu og þá bara blasti þetta við mér í forstofunni. Það var greinilegt að þeir settu inn eitt Morgunblað í gegnum bréfalúgu og sprautuðu svo eldfimum vökva yfir. Settu vel af honum – svo bara kveikt í.“
Hafa enga hugmynd um hver var að verki
Hjónin eru engu nær um hvers vegna kveikt hafi verið í Morgunblaði og það sett inn um bréfalúgu á heimilinu.
„Ég er bara saklaus garðyrkjufræðingur og konan mín er góður sagnfræðingur að stúdera fornar sögur. Ég veit ekki hvað hefur vakað fyrir þessu fólki, hvort þetta var í vitlausu húsi eða hvað. Ég hef bara ekki hugmynd og við vitum ekkert ástæðuna,“ segir Heimir Björn.
Hann segir lífsreynsluna skelfilega.
„Maður er eiginlega að upplifa sjokkið alltaf meira og meira eftir því sem líður á daginn. Maður var ansi kúl og kaldur á þessu í morgun en það er farinn að þyngjast í manni kviðurinn þegar líður á daginn.“
Hefði getað farið verr
Heimir Björn segir að blessunarlega hafi ekki kviknað í gólfmottunni í forstofunni, aðeins eldfimi vökvinn hafi brunnið. Þó hafi komið mikil og vond lykt frá brunanum sem hafi dreift sér um alla íbúðina.
„Það sem brann var náttúrlega útihurðin, hún skemmdist dálítið að innanverðu, og svo öll gólfefni þarna í forstofunni og svo náttúrlega allar yfirhafnir sem voru þar á fatahengi. Þær eru gegnumsýrðar af reyk og lykt. Ég veit nú ekki hvernig gengur að þrífa það.“
Hjónin höfðu samband við lögreglu í morgun sem var komin á staðinn skömmu síðar.
„Þau stoppuðu reyndar mjög stutt, tóku myndir og stutta skýrslu. Svo hringdum við í tryggingafélagið og þeir voru komnir klukkan níu, tjónamatsmaður. Hann hringdi út ræstifólk sem kom og mat aðstæður klukkan tíu.“
Tryggingafélagið hafi veitt þeim góðan stuðning í þessum erfiðu aðstæðum.
„Þeir hafa staðið sig alveg frábærlega í dag og verið fínn stuðningur að vita af þeim. Það var allavega eitthvað ánægjulegt við þetta í dag,“ segir Heimir Björn.