Maðurinn sem er ákærður fyrir að stinga mann í bílakjallaranum við Höfðatorg aðfaranótt 17. mars segist hafa verið að reyna að stöðva átök milli tveggja hópa. Áhald sem hann hafi verið með hafi verið afrískur tannbursti sem hann notaði til að róa sig niður þegar hann var stressaður.
Skýrslur voru teknar af öllum þremur sakborningum við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í fyrri frétt greindum við frá vitnisburði hinna sakborninganna tveggja: þess sem er grunaður um að hafa ekið bifreið á brotaþola á miklum hraða, og þess sem er grunaður um að hafa barið brotaþola ítrekað með óþekktu áhaldi eftir að ekið var á hann.
Þriðji sakborningurinn er grunaður um að hafa stungið brotaþola í rasskinnina. Skýrsla var tekin af honum fyrir héraðsdómi síðdegis.
Líkt og fyrsti sakborningurinn, sem grunaður er um að hafa ekið á brotaþola, sagðist þriðji sakborningurinn hafa komið í bílakjallarann daglega í lengri tíma, einn eða tvo mánuði. Hann sagðist fara þangað með vinum sínum til þess að reykja kannabis.
Umrætt kvöld segir hann hafa verið venjulegt kvöld í bílakjallaranum þar til þrír menn hafi mætt þangað: brotaþoli og tveir aðrir. Sakborningur segir einhvern hafa öskrað að þeir væru með byssur og þá hafi skapast öngþveiti.
Sakborningurinn segist hafa reynt að stöðva átök milli fólks og sagðist hafa séð menn úr báðum hópum með vopn. Menn í hópi brotaþola hafi verið með kylfu og sveðju og sá þriðji með eitthvað í vasanum.
Eins og áður segir er sakborningurinn grunaður um að hafa stungið brotaþola. Hann neitaði því en sagðist hafa séð menn með hnífa og barefli í kringum brotaþola. Hann kvaðst ekki geta borið kennsl á þá né þann sem ók hvíta Land Rovernum á brotaþola.
Noti tannburstann í stað þess að naga neglurnar
Saksóknarar byggja ákæruna gegn sakborningi meðal annars á því að á öryggismyndavélum sjáist til hans halda á áhaldi. Sakborningur sagði að áhald sem hann var með hafi verið afrískur tannbursti. Sakborningurinn er fæddur í Sómalíu og sagði slíka tannbursta algenga þar. Hann hafi alltaf verið með tannburstann á sér, notað hann til að minnka stress og til að koma í veg fyrir þann slæma ávana að naga neglurnar.
Sakborningurinn sagðist ekki hafa þekkt hina sakborningana en hefði kynnst þeim sem er grunaður um að hafa ekið á brotaþola í fangelsi, þar sem þeir hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan þeir voru handteknir. Hann sagðist ekkert hafa þekkt brotaþola.