„Lélegt grín sem þó ber að taka alvarlega,“ segja forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar um afbakað landakort Donalds Trumps Bandaríkjaforseta sem birt var í gær. Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, vildi ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins í dag.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Long á sinn fund í gær vegna myndar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á Truth Social af landakorti þar sem hann hafði þakið nokkur ríki sem ekki tilheyra Bandaríkjunum með bandarísku fánalitunum.
Þar á meðal voru Ísland, Grænland og Kanada.
„Þetta var algjörlega óviðeigandi. Mér hefur verið bent á ítrekað innan úr bandarísku stjórnsýslunni að við eigum kannski ekki að taka núverandi Bandaríkjaforseta bókstaflega en við eigum að taka honum alvarlega,“ segir Þorgerður Katrín.
„Það er nákvæmlega það sem við erum að gera og undirstrika að Ísland er fullvalda, sjálfstætt ríki sem ber ábyrgð á sínum örlögum sjálft.“
Ísland haldi áfram að standa með Grænlendingum og þeirra rétti til þess að ákveða sín örlög og sína framtíð sjálfir.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir undirtóninn í birtingu Trumps fáránlegan.
„Þetta er bara móðgun við Íslendinga, Kanadamenn og Grænlendinga að tjá sig með þessum hætti og við eigum bara að vera skýr þegar kemur að því. Það er ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja, sérstaklega í dag þegar það er ekki sjálfgefið,“ sagði hún á blaðamannafundinum.
Lars Lökke, utanríkisráðherra Danmerkur, velti því upp hvort Færeyjar hefðu líka verið þaktar bandaríska fánanum ef þær hefðu verið með á korti Trumps.
„Þetta er að sjálfsögðu uggvekjandi og á margan hátt óviðeigandi. Þetta eru auðvitað merki um að Bandaríkjaforseti sé áfram með einhverjar mikilmennskusýnir í höfðinu,“ segir Lökke.
Enn sé unnið að samkomulagi þar sem komið er til móts við kröfur Bandaríkjamanna á sviði öryggis- og varnarmála og sem tryggir á sama tíma rauðu línurnar í stjórnskipulegu sambandi Danmerkur, Grænlands og Færeyja.
„Það er grænlensku þjóðarinnar að ákveða framtíð sína. Og auðvitað er Grænland ekki til sölu,“ segir Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, um málið.