Landtökumenn á Vesturbakkanum hafa beitt Palestínumenn auknu ofbeldi á árinu og foreldrar óttast um líf barna sinna. Sameinuðu þjóðirnar segja að árásirnar séu að meðaltali þrjár á dag.
Tólf ríki, þar á meðal Ísland, önnur norræn ríki og Bretland, tilkynntu í dag um takmarkanir á viðskiptum við fyrirtæki á landtökubyggðum Ísraela á Vesturbakkanum.
Í sameiginlegri yfirlýsingu segir að ástandið hafi versnað hratt vegna fordæmalauss ofbeldis af hálfu landtökumanna og stækkunar landtökubyggða. Framferði Ísraela grafi undan möguleika á tveggja ríkja lausn.
Saka Ísraela um þjóðernishreinsanir á Vesturbakkanum
Bretar ætla að setja innflutningsbann á vörur sem framleiddar eru á stöðum sem Ísraelar hafa hertekið. „Breska ríkisstjórnin er sammála því að þjóðernishreinsanir á Palestínumönnum fari fram á hluta Vesturbakkans af hálfu landtökuhryðjuverkamanna,“ sagði Ed Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, þegar hann kynnti efnahagsþvinganirnar í dag.
Stjórnvöld í Ísrael hafi allt of oft látið sem þau viti ekki af ofbeldinu, sagði ráðherrann. Enn verra sé að ráðamenn hafi með orðum og athöfnum stutt að Palestínumenn séu hraktir nauðugir á brott.
Hafa drepið 1.122 síðan 7. október 2023
Ísraelar hernámu hluta Vesturbakkans 1967 og hafa síðan hertekið sífellt meira land í trássi við alþjóðalög. Meirihluti íbúa er Palestínumenn. Þar búa líka þúsundir Ísraela, sem hafa sölsað undir sig land Palestínumanna og eru ýmist kallaðir landtökumenn eða landránsmenn. Þeir og Ísraelsher hafa gert árásir á almenna borgara og hrakið þá frá heimilum sínum. Herinn hefur sett upp eftirlitsstöðvar víða sem torvelda mjög ferðir Palestínumanna. Samkvæmt UNRWA, flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna í Palestínu, hafa Ísraelar drepið 1.122 Palestínumenn á Vesturbakkanum frá 7. október 2023, þar af 246 börn.
Tveir unglingar, 19 og 16 ára, sem Ísraelsher og landtökumenn drápu voru bornir til grafar á dögunum. Sjónarvottar segja þá hafa reynt að hindra að landtökumaður myndi stela kind og að þá hafi Ísraelar ráðist á þá. Sameinuðu þjóðirnar hafa skráð að meðaltali þrjár árásir á Palestínumenn á Vesturbakkanum daglega á árinu.
Syrgjandi faðir segir árásir á unga menn algengar
Mohammed Al-Naasan, faðir eldri drengsins, segir dráp á ungum mönnum orðið daglegt brauð. „Þegar sonur þinn fer út á götu þá getur þú alveg eins búist við að hann verði særður eða drepinn, að herinn handtaki hann eða að hann verði barinn og dreginn eftir götunni.“ Það heyrir til undantekninga að landtökumenn hljóti dóma fyrir grimmdarverk sín.
Bandaríkin eru helsti bandamaður Ísraela og hafa verið gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi. Sendiherra landsins í Ísrael hitti Palestínumenn með bandarískan ríkisborgararétt á Vesturbakkanum um síðustu helgi. „Glæpir eru glæpir. Ógnir eru ógnir. Þeir sem brjóta af sér ættu að gera ráð fyrir alvarlegum afleiðingum,“ sagði sendiherrann án þess þó að nefna Ísrael á nafn.
Abu Awad er einn þeirra sem fóru á fund sendiherrans. Hann stundaði búskap þar til Ísraelar sviptu hann lifibrauði sínu og heimili. „Hverjir studdu Ísrael? Hverjir útveguðu Ísraelum vopnin sem lögðu allt svæðið í rúst?“ spurði hann á fundinum. Awad býst ekki við að sendiherrann aðstoði hann við að endurheimta heimilið.