Segja má að skipulags- og umhverfisráð Kópavogsbæjar hafi skrifað enn einn kaflann í hina afar stormasömu sögu landareigninnar Vantsenda í gær. Meirihluti ráðsins hafnaði umsókn um breytingar á aðalskipulagi bæjarins og deiliskipulagi landareignarinnar. Snerist umsóknin um að heimilt yrði að byggja nokkurn fjölda íbúðarhúsa á bæði opnum svæðum og lóðum á landinu, sem eru í dag ekki skilgreindar sem íbúðarlóðir. Höfðu sams konar erindi verið áður lögð fram en án árangurs.
Enn einn kaflinn skrifaður í stormasamri sögu Vatnsendalandsins - Neitað enn á ný um leyfi til að þétta byggðina