Hútar stjórna stórum hluta Jemen, þar á meðal höfuðborginni Sana, en þeir eru studdir af klerkastjórninni í Íran. Sádar hafa stutt alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen gegn Hútum um árabil.
Leiðtogar Húta tilkynntu í dag að þeir hefðu gert árásir í Sádi-Arabíu og að þær hefðu beinst að herstöð í Khamis Mushait, olíuvinnsluinnviðum nærri Abha, Jajran og Jazan og öðrum skotmörkum í borgunum fjórum.
Í frétt Reuters segir að reykjarmökkur hafi verið sýnilegur frá að minnsta kosti tveimur borgum á gervihnattamyndum í dag.
Á undanförnum mánuðum hafa Hútar gert árásir á aðra olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og á olíuflutningaskip en Sádar hafa flutt mun meira af olíu gegnum Rauðahaf en áður vegna stríðs Bandaríkjanna og Íran.
Þá hafa átökin í Jemen aukist töluvert að undanförnu en fjögurra ára vopnahlé byrjaði að liðast í sundur í júlí, þegar Hútar lýstu því yfir að þeir ætluðu að stöðva olíuflutning Sáda um Rauðahaf.
Boða umfangsmikla sókn gegn Hútum
Hútar hafa frá því í síðustu viku reynt að hernema strandlengjuna við Bab al-Mandab-sund, sem tengir Rauðahaf við Adenflóa.
Leiðtogar ríkisstjórnarinnar boðuðu svo í gær umfangsmikla sókn gegn Hútum, með því markmiði að reka þá á brott frá höfuðborginni. Líklegt er að sóknin sé gerð með stuðningi Sáda en í kjölfarið gerðu Hútar áðurnefndar árásir í nótt.
#Yemen’s Deputy Defense Minister Maj. Gen. Sameer Al-Sabri: “The decision has been made to retake Sana’a [from the Houthis]. There are surprises we will not reveal now. We will be the ones to end this war after the militia started it.” pic.twitter.com/pBARXTbAi3
— Ali Al-Sakani | علي السكني (@Alsakaniali) September 7, 2026
Leiðtogar Húta sögðu þær árásir vera svar við árásum Sáda, samkvæmt frétt BBC. Þeir segja Sáda hafa gert rúmlega 120 loftárásir í Jemen á undanförnum dögum og að með þeim hefðu Sádar framið „alvarlega glæpi“.
Átökin og árásirnar hafa leitt til hækkunar olíuverðs í dag en Brent-hráolía hefur ekki verið hærri frá því um miðjan júlí, eins og fram kemur í frétt Reuters. Þá geta átökin leitt til enn frekari hækkunar ef þau koma niður á olíuflutningum um Rauðahaf og draga úr framleiðslu í Sádi-Arabíu.
Í samtali við Wall Street Journal segir einn greinandi að ástandið við Persaflóa og Rauðahaf gæti varað út árið.