Svikarinn og fyrrum athafnakonan Elizabeth Holmes afplánar nú refsingu sína í fangelsi. Þar endaði hún eftir óforskömmuð svik í tengslum við blóðprufufyrirtækið Theranos þar sem hún blekkti fjárfesta með því að sannfæra þá um að hún byggi yfir byltingarkenndri tækni sem gæti greint ýmsa alvarlega sjúkdóma og kvilla út frá aðeins einum blóðdropa. Fyrirtækið reyndist byggt á sandinum einum og ekkert af stórkallalegum loforðum Holmes stóðst nánari skoðun. Hún var árið 2022 dæmd í ellefu ára fangelsi fyrir að ljúga að fjárfestum og svíkja þá.
Netverjar skelfingu lostnir yfir óvæntri heimildarmynd um athafnakonuna - „Hún er bókstaflega geðveik“