Foreldrar hans, prinsinn og prinsessan af Wales, fylgdu 13 ára syninum á fyrsta deginum í skólann sem staddur er í Windsor í Berkskíri á Englandi.
Eton er einn dýrasti einkaskóli Bretlands og nema skólagjöldin um 65 þúsund pundum á ári, eða um 10,5 milljónum króna, segir í umfjöllun BBC.
Meðal þekktra fyrrum nemenda við skólann eru um tuttugu fyrrverandi forsætisráðherrar Bretlands, þar á meðal David Cameron og Boris Johnson og rithöfundarnir George Orwell og Ian Fleming.
Skólastjóri Eton, Simon Henderson, tók á móti fjölskyldunni og tók í hönd prinsins og sagði: „Velkominn, gangi þér vel og njóttu dvalarinnar.“
Georg er annar í erfðaröðinni að bresku krúnunni. Systir hans Karlotta prinsessa er þriðja í röðinni á eftir honum og bróðir hans Lúðvík prins sá fjórði.