Að­eins um 28 prósent inn­flytj­enda með grunn­færni í les­skilningi - Vísir

Að­eins um 28 prósent inn­flytj­enda með grunn­færni í les­skilningi - Vísir

Að­eins um 28 prósent inn­flytj­enda með grunn­færni í les­skilningi - Vísir

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar heldur árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum áfram að versna. Staðan er enn lakari þegar litið er til þeirra barna sem eiga einhvern erlendan bakgrunn. 

Í landsskýrslu fyrir Ísland sem unnin var af Háskóla Íslands úr PISA-niðurstöðunum kemur fram að í gagnagrunnum og greiningum OECD sé nemendum skipt í þrjá flokka eftir bakgrunni. 

Grunn- og afburðahæfni á Íslandi eftir bakgrunni. Stjórnarráðið

Það eru þá í fyrsta lagi innflytjendur af 1. kynslóð, sem eru nemendur sem fæddust erlendis og eiga foreldra eða forsjáraðila sem fæddust báðir erlendis, í öðru lagi innflytjendur af 2. kynslóð, sem eru þá nemendur sem fæddust í þátttökuríkinu en eiga foreldra eða forsjáraðila sem fæddust báðir erlendis, og svo þriðji flokkurinn sem eru þá nemendur sem ekki hafa erlendan bakgrunn [e. native students]. Tekið skal fram að nemendur af fyrstu kynslóð eru þeir sem fæddust erlendis og hafa almennt verið skemur í íslensku samfélagi og skólakerfi en aðrir hópar nemenda sem taka þátt í PISA.

Í landsskýrslunni er fjallað sérstaklega um þessa þrjá hópa og misjafna frammistöðu þeirra í könnuninni sem er ætlað að mæla grunnfærni nemenda í læsi, stærðfræði og náttúruvísindum auk þess sem skoðaðir eru ýmsir félagslegir þættir eins og einelti, þrautseigja, stuðningur kennara og markmiðasetning.

Töluverð fjölgun nemenda af erlendum uppruna

Í skýrslunni segir að af heildarfjölda þátttakenda í PISA 2025 á Íslandi teljist 10,1 prósent til hópsins innflytjendur samkvæmt hugtakaskilningi PISA og að það sé talsverð fjölgun frá síðustu fyrirlögn árið 2022. Þá hafi vegið hlutfall innflytjenda verið 7,4 prósent og að fjölgunin skýrist einkum af hlutfallslegri fjölgun nemenda sem tilheyra annarri kynslóð innflytjenda en hlutfall þeirra hafi á tímabilinu farið úr 3,5 prósentum í 6,4 prósent. Í töflu 11.1 koma einnig fram heildarhlutföll þessara hópa í 10. bekkjum á Íslandi sömu skólaár og fyrirlagnir PISA fóru fram.

Hlutfall nemenda með innflytjendabakgrunn meðal íslenskra PISA-þátttakenda og allra nemenda í 10. bekkjum grunnskóla.Háskóli Íslands

Í landsskýrslunni kemur jafnframt fram að á Íslandi mælist hæst það hlutfall nemenda sem talar annað tungumál en íslensku heima hjá sér í samanburði við önnur Norðurlönd, , bæði hjá innflytjendum af 2. kynslóð (77%) og 1. kynslóð (97%).

Meðalstig á öllum sviðum PISA á Íslandi eftir innflytjendastöðu og heild. Háskóli Íslands

Í landsskýrslunni segir að frammistöðumunur hafi verið á öllum matssviðum þegar bornir eru saman nemendur með engan erlendan bakgrunn og nemendur sem teljast til innflytjenda. Frammistöðumunur á íslenskum nemendum úr hópi innflytjenda og nemendum með engan erlendan bakgrunn hafi verið mestur í lesskilningi. 

Í landsskýrslunni segir að þetta komi heim og saman við fyrri niðurstöður PISA þvert á ríki OECD, enda reyni lesskilningsverkefnin að jafnaði mest á tungumálafærni nemenda. Munurinn á frammistöðu sé meiri þegar horft sé til fyrstu kynslóðar innflytjenda (323 stig) og nemenda með engan erlendan bakgrunn (441 stig) eða 118 stig.

Munurinn á frammistöðu í lesskilningi sé einnig töluverður þegar litið sé til nemenda af annarri kynslóð innflytjenda (378 stig) en meðalstig þess hóps er 62 stigum lægra en meðalstig nemenda með engan erlendan bakgrunn. Þeir nemendur séu að meðaltali 62 stigum lægri í lesskilningi en nemendur með engan erlendan bakgrunn.

Þá kemur fram að frammistaða í vísindum hafi verið mjög ólík þegar bornir eru saman innflytjendur af fyrstu kynslóð (364 stig) og nemendur með engan erlendan bakgrunn (456 stig). Meðalstigafjöldi nemenda af fyrstu kynslóð innflytjenda sé 91 stigi lægri en þeirra með engan erlendan bakgrunn. Í stærðfræðilæsi hafi munurinn á frammistöðu nemenda með engan erlendan bakgrunn (461 stig) og innflytjenda (420 stig) verið alls 41 stig.

Í niðurstöðum kemur svo fram að í stærðfræði hafi nemendur af fyrstu kynslóð innflytjenda verið lægstir í stærðfræði eða 411 stig að meðaltali og muni þá fimmtíu stigum á þeim nemendahópi og nemendum með engan erlendan bakgrunn.

Áhrif félags- og efnahagslegrar stöðu

Í landsskýrslunni er bent á að nauðsynlegt sé að skoða hvort frammistöðumun þessara hópa megi skýra að hluta eða í heild af mun á félags- og efnahagslegri stöðu þeirra. Í skýrslunni segir að aðstöðumunur þessara hópa birtist einnig eftir því hvaða tungumál er talað á heimilinu en þó er tekið fram að breytan hafi ekki marktæk áhrif á frammistöðu eftir að stjórnað hafi verið fyrir félags- og efnahagslega stöðu.

Niðurstaðan sé að frammistöðumunurinn á milli þessara hópa sé minni þegar tekið hefur verið tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu nemenda en sé þó enn umtalsverður. Þegar litið sé til innflytjenda í heild sé munurinn minnstur í stærðfræði þar sem mælist 41 stiga munur, en mun meiri í lesskilningi (83 stiga munur) og vísindum (65 stiga munur).

„Munurinn sem er á frammistöðu innflytjenda minnkar í öllum tilvikum þegar búið er að taka tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu,“ segir í landsskýrslunni.

Staðan verst í Finnlandi

Í landsskýrslunni er staða þessara nemenda á Íslandi borin saman við sama hóp á öðrum Norðurlöndum en þó tekið fram að samsetning hópanna sé misjöfn eftir löndum.

Í skýrslunni má því sjá að af Norðurlöndunum hafi frammistöðumunur innflytjenda og nemenda með engan erlendan bakgrunn verið mestur í Finnlandi en minnstur í Noregi þar sem munurinn lá næst meðaltali OECD. Munurinn í Svíþjóð, Íslandi og Danmörku hafi verið mjög svipaður eða á bilinu 60 til 70 stig. Í öllum tilvikum sé munurinn marktækur og meðalstig innflytjenda lægra en þeirra með engan erlendan bakgrunn.

Verði að mæta þörfum ólíkra nemenda

PISA (Programme for International Student Assessment) er umfangsmikil alþjóðleg könnun á vegum OECD á hæfni og getu 15 ára nemenda í lesskilningi, vísindum og stærðfræði. Sá aldur er valinn þar sem hann markar lok skólaskyldu í flestum löndum.

PISA-könnunin er lögð fyrir á þriggja ára fresti og í hverri könnun leysa nemendur verkefni í lesskilningi, vísindum og stærðfræði og svara auk þess spurningum um viðhorf, áhugahvöt, félags- og tilfinningafærni, líðan og upplifun af námi. Ísland hefur tekið þátt í PISA frá fyrstu könnun árið 2000 þegar 43 ríki tóku þátt.

Í PISA 2025 var sérstök áhersla lögð á hæfni og þekkingu nemenda á sviði vísinda. Könnunin var lögð fyrir í mars og apríl 2025 og liggja niðurstöðurnar nú fyrir. Tæplega 4000 nemendur tóku þátt og var heildarþátttökuhlutfall 83 prósent.

Í tilkynningu Stjórnarráðsins um niðurstöðurnar segir að fjölgun nemenda af erlendum uppruna undirstriki mikilvægi þess að skólakerfið mæti fjölbreyttum þörfum nemenda og tryggi öllum nemendum jöfn tækifæri til náms og þátttöku. Þá segir að það séu skýr tækifæri til að styrkja tilfinningu þessara nemenda fyrir því að tilheyra skólasamfélaginu og auka öryggi þeirra og vellíðan. Niðurstöðurnar kalla á markvissan stuðning við íslenskunám, nám almennt og félagslega þátttöku.

#aðeins #grunnfærni #innflytjenda #með #prósent


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262931952d/adeins-um-28-prosent-innflytjenda-med-grunnfaerni-i-lesskilningi

📰 Aðrar fréttir

US forces hit five Iranian tankers as Tehran targets American base in Jordan
📅 09.09.2026 👁️ 1
US forces hit five Iranian tankers as Tehran targets American base in Jordan
Oil prices edged closer to $100 a barrel after an escalation in the tit-for-tat strikes between the US and Iran.
Bandaríkjaher réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip
📅 09.09.2026 👁️ 1
Bandaríkjaher réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip
Bandaríski herinn réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip í gær eftir að Íranar réðust á herskip þeirra. Yfirstjórn Bandaríkjahers segir olíuskipin eyði...
US slaps import ban on Canadian alcohol and other goods
📅 08.09.2026 👁️ 1
US slaps import ban on Canadian alcohol and other goods
It is the latest escalation in a trade war between the two countries, and comes as Canadian retaliatory tariffs on US goods come into force.
Very hot drinks may damage the food pipe and increase cancer risk
📅 08.09.2026 👁️ 1
Very hot drinks may damage the food pipe and increase cancer risk
Steaming hot liquid can damage the cell lining on the way down to the stomach, experts say.
Segir þörf á sam­heldni innan „evrópsku fjöl­skyldunnar“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Segir þörf á sam­heldni innan „evrópsku fjöl­skyldunnar“ - Vísir
Þetta er meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir í bréfi sem hún sendi til Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, í...
The trail of clues that our planet might be heating faster than we realised
📅 08.09.2026 👁️ 0
The trail of clues that our planet might be heating faster than we realised
A curious online row over this summer's heatwaves points to a wider - and worrying - shift in climate science.
'Constantly on my mind' - 9/11 agony goes on for bereaved, 25 years on
📅 08.09.2026 👁️ 1
'Constantly on my mind' - 9/11 agony goes on for bereaved, 25 years on
As the 25th anniversary approaches, the wait for the alleged mastermind of the attack to be put on trial goes on.
Frekari tafir á flugumferð á morgun
📅 08.09.2026 👁️ 1
Frekari tafir á flugumferð á morgun
Gera má ráð fyrir að enn verði tafir á flugi um Bretland og Írland á morgun. Flugsamgöngur þar fóru verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál k...
Kosningaskjálftinn fer vaxandi í Svíþjóð - Brestir í bandalagi hægri manna þótt það sé að vinna á
📅 08.09.2026 👁️ 0
Kosningaskjálftinn fer vaxandi í Svíþjóð - Brestir í bandalagi hægri manna þótt það sé að vinna á
Næsta sunnudag fara fram þing- og sveitarstjórnarkosningar í Svíþjóð. Taugar stjórnmálaflokkanna virðast vera að þenjast til hins ýtrasta en merki eru...
„Ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja“
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja“
„Lélegt grín sem þó ber að taka alvarlega,“ segja forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar um afbakað landakort Donalds Trumps Bandaríkjaforseta sem birt var í...
„Hjarta okkar slær nákvæmlega í takt“
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Hjarta okkar slær nákvæmlega í takt“
„Hér er botni náð. Við höfum í rauninni eina leið að fara og það er upp,“ segir Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem boðaði í dag nýjar aðge...
Netverjar skelfingu lostnir yfir óvæntri heimildarmynd um athafnakonuna - „Hún er bókstaflega geðveik“
📅 08.09.2026 👁️ 0
Netverjar skelfingu lostnir yfir óvæntri heimildarmynd um athafnakonuna - „Hún er bókstaflega geðveik“
Svikarinn og fyrrum athafnakonan Elizabeth Holmes afplánar nú refsingu sína í fangelsi. Þar endaði hún eftir óforskömmuð svik í tengslum við blóðprufu...
Prinsinn hefur nám við Eton-skóla - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Prinsinn hefur nám við Eton-skóla - Vísir
Foreldrar hans, prinsinn og prinsessan af Wales, fylgdu 13 ára syninum á fyrsta deginum í skólann sem staddur er í Windsor í Berkskíri á Englandi. Eto...
Ný kennsluaðferð gæti skilað betri árangri
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ný kennsluaðferð gæti skilað betri árangri
„Erlendar rannsóknir hafa sýnt okkur hvað við getum gert og hvað krakkarnir þurfa að geta til að hafa góðan lesskilning,“ segir Sigríður Ólafsdóttir, ...
Réðust á fleiri olíu­flutninga­skip - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Réðust á fleiri olíu­flutninga­skip - Vísir
Ríkismiðlar Íran hafa birt viðvarnir frá leiðtogum Byltingarvarðar Íran til áhafna annarra olíuflutningaskipa á svæðinu, um að þau gætu orðið skotmörk...
Deilt um uppsagnir og hagræðingu í Ráðhúsinu
📅 08.09.2026 👁️ 1
Deilt um uppsagnir og hagræðingu í Ráðhúsinu
Minni- og meirihluta borgarstjórnar greindi verulega á um skipulagsbreytingar og uppsagnir á borgarstjórnarfundi í dag. Búast má við að frekari hagræð...
Enn einn kaflinn skrifaður í stormasamri sögu Vatnsendalandsins - Neitað enn á ný um leyfi til að þétta byggðina
📅 08.09.2026 👁️ 1
Enn einn kaflinn skrifaður í stormasamri sögu Vatnsendalandsins - Neitað enn á ný um leyfi til að þétta byggðina
Segja má að skipulags- og umhverfisráð Kópavogsbæjar hafi skrifað enn einn kaflann í hina afar stormasömu sögu landareigninnar Vantsenda í gær. Meirih...
Skutu tugum eld­flauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Skutu tugum eld­flauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu - Vísir
Hútar stjórna stórum hluta Jemen, þar á meðal höfuðborginni Sana, en þeir eru studdir af klerkastjórninni í Íran. Sádar hafa stutt alþjóðlega viðurken...
Paul Adams: British-Israeli relations at lowest ebb in decades
📅 08.09.2026 👁️ 1
Paul Adams: British-Israeli relations at lowest ebb in decades
Israel's response to London's trade ban with Israeli settlements in the occupied West Bank shows how important this moment is.
Hafnaði 40 milljón dala þagnarsamningi Musks - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Hafnaði 40 milljón dala þagnarsamningi Musks - Vísir
Myndin Musk var frumsýnd í dag á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Heimildarmyndaleikstjórinn Alex Gibney leikstýrir nærri fjögurra klukkustunda langri m...
Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks - Vísir
Myndin Musk var frumsýnd í dag á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Heimildarmyndaleikstjórinn Alex Gibney leikstýrir nærri fjögurra klukkustunda langri m...
Aukin grimmd Ísraela á Vesturbakkanum – Palestínumenn óttast um líf barna sinna
📅 08.09.2026 👁️ 1
Aukin grimmd Ísraela á Vesturbakkanum – Palestínumenn óttast um líf barna sinna
Landtökumenn á Vesturbakkanum hafa beitt Palestínumenn auknu ofbeldi á árinu og foreldrar óttast um líf barna sinna. Sameinuðu þjóðirnar segja að árás...
LIV Golf: Players free to leave after competition files for bankruptcy protection
📅 08.09.2026 👁️ 1
LIV Golf: Players free to leave after competition files for bankruptcy protection
LIV Golf intends to starts its new league early next year after filing for bankruptcy protection in the United States.
LIV Golf: Players have option to leave after competition files for bankruptcy protection
📅 08.09.2026 👁️ 0
LIV Golf: Players have option to leave after competition files for bankruptcy protection
LIV Golf has filed for bankruptcy protection with at least $45m (£33m) owed to players, who will now have the option to leave.
Telur að bæta þurfi kennslu inni í skólastofum
📅 08.09.2026 👁️ 1
Telur að bæta þurfi kennslu inni í skólastofum
Háskóli Íslands stóð fyrir málþingi í dag um niðurstöður PISA-könnunarinnar. Þar kom fram að efla þurfi kennaranám og beita skýrri og markvissri kenns...
„Það kostar peninga að afla peninga“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Það kostar peninga að afla peninga“ - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi valkyrjanna í morgun þar sem þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar var kynnt. Inga Sæland fór þar mikinn ...
Skiptar skoðanir á „mjög áhugaverðri hugmynd“ - „Líklega hámark vitleysunnar“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Skiptar skoðanir á „mjög áhugaverðri hugmynd“ - „Líklega hámark vitleysunnar“
Hugmyndir um kláf upp á topp Esjunnar hafa lengi verið til skoðunar, en fengu innspýtingu á árinu 2024 þegar Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir óskaði eft...
Ríki og borg séu „tvíhöfða vaxta/verðbólguskrímsli“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ríki og borg séu „tvíhöfða vaxta/verðbólguskrímsli“
Már Wolfgang Mixa, hagfræðingur, segir Reykjavíkurborg og ríkið hegða sér eins og tvíhöfða vaxta og verðbólgu skrímsli. Raunstýrivextir hafi sjaldan v...
Kveikt í dagblaði og stungið inn um lúgu heimilis
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kveikt í dagblaði og stungið inn um lúgu heimilis
„Þetta er mjög slæm tilfinning, að upplifa það að það sé verið að ráðast á heimili manns og með þessum hætti líka. Ráðherrar og fleiri hafa verið að l...
Farþegar kyrrsetts skip á Svalbarða fluttir heim til Rússlands
📅 08.09.2026 👁️ 1
Farþegar kyrrsetts skip á Svalbarða fluttir heim til Rússlands
Norsk yfirvöld hafa flutt 69 rússneska ríkisborgara aftur til síns heima en þeir hafa verið fastir á Svalbarða eftir að rússneskt skip sem þeir voru á...
Óttaðist um líf sitt í bílakjallaranum
📅 08.09.2026 👁️ 1
Óttaðist um líf sitt í bílakjallaranum
Brotaþoli í Höfðatorgsmálinu segist hafa óttast um líf sitt aðfaranótt 17. mars. Þrír menn eru ákærðir fyrir manndrápstilraun gegn honum með því að ha...
South Park verður South America - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
South Park verður South America - Vísir
Þá hefur Trump einnig gefið til kynna að hann vilji breyta nafni ríkisins Nýja-Mexíkó yfir í Nýja-Ameríka. Sjá einnig: Nafna­breytingaæði Trumps heldu...
Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 2
Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp - Vísir
Sunna Sæmundsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir ræddu við Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, um komandi þingvetu...
Abuse of RNLI volunteers 'wholly unacceptable', chief says
📅 08.09.2026 👁️ 1
Abuse of RNLI volunteers 'wholly unacceptable', chief says
Peter Sparkes says there has been "deliberate misinformation" spread about the charity.
Vänsterpartiet í Svíþjóð í vanda vegna Hamas-málsins
📅 08.09.2026 👁️ 1
Vänsterpartiet í Svíþjóð í vanda vegna Hamas-málsins
Vänsterpartiet í Svíþjóð í vanda vegna Hamas-málsins Fréttin8. september 2026Aðsend grein, Erlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifa...
Þetta eru málin sem ríkisstjórnin setur í forgang
📅 08.09.2026 👁️ 2
Þetta eru málin sem ríkisstjórnin setur í forgang
159 mál eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Fjármála- og efnahagsráðherra er með flest eða 26 en forsætisráðherra og utanríkisráðherra fæst eða 7 h...
Kveðst hafa verið að reyna að stöðva átökin og verið með tannbursta meðferðis
📅 08.09.2026 👁️ 2
Kveðst hafa verið að reyna að stöðva átökin og verið með tannbursta meðferðis
Maðurinn sem er ákærður fyrir að stinga mann í bílakjallaranum við Höfðatorg aðfaranótt 17. mars segist hafa verið að reyna að stöðva átök milli tvegg...
Tæknibilun hefur áhrif á flug í Bretlandi og á Írlandi
📅 08.09.2026 👁️ 1
Tæknibilun hefur áhrif á flug í Bretlandi og á Írlandi
Flugsamgöngur á Bretlandi og Írlandi hafa farið verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál kom upp í flugumsjónarkerfinu NATS.Mestar voru trufla...
„Við þurfum að hafa metnað sem samfélag fyrir menntun barnanna okkar“
📅 08.09.2026 👁️ 2
„Við þurfum að hafa metnað sem samfélag fyrir menntun barnanna okkar“
Helsta áskorunin í íslensku skólakerfi er agaleysi, hlutfall innflytjenda, skortur á námsgögnum, afnám samræmdra prófa, óáhugaverðar bækur, skóli án a...
Þórunn Erna er sorgmædd og reið: „Já ég er reið“
📅 08.09.2026 👁️ 2
Þórunn Erna er sorgmædd og reið: „Já ég er reið“
Leikkonan Þórunn Erna Clausen segir að hún sé sorgmædd og reið eftir að hafa kynnt sér niðurstöður PISA könnunarinnar og biðlar til þjóðarinnar um hæt...
Þjófnaðir, húsbrot og íkveikja í Reykjavík
📅 08.09.2026 👁️ 2
Þjófnaðir, húsbrot og íkveikja í Reykjavík
Það var nóg um að vera í dag hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en meðal verkefna sem komu til kasta hennar voru þjófnaðir, húsbrot og íkveikja.Þett...
Sam­mála um að vilja binda enda á stríðið sem fyrst - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Sam­mála um að vilja binda enda á stríðið sem fyrst - Vísir
Forsetarnir töluðu saman í síma í dag en símtalið mun hafa staðið yfir í rúma klukkustund, samkvæmt Júrí Úsjakóv, aðstoðarmanni og ráðgjafa Pútíns. Ús...
Töluðu saman í klukku­tíma - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 2
Töluðu saman í klukku­tíma - Vísir
Forsetarnir töluðu saman í síma í dag en símtalið mun hafa staðið yfir í rúma klukkustund, samkvæmt Júrí Úsjakóv, aðstoðarmanni og ráðgjafa Pútíns. Ús...
Glastonbury confirms ticket sale dates - and highest ever price
📅 08.09.2026 👁️ 2
Glastonbury confirms ticket sale dates - and highest ever price
The festival will return in June after taking a fallow year, but tickets have topped £400 for the first time.
Íkveikja í Mið­borginni - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 2
Íkveikja í Mið­borginni - Vísir
Er þetta meðal þeirra 65 mála sem koma fram í yfirliti lögreglu frá því klukkan 5 í morgun til 17 síðdegis í dag. Alls séu sex vistaðir í fangageymslu...
Pólverjar á Íslandi hóta eigin Nóbelshöfundi
📅 08.09.2026 👁️ 2
Pólverjar á Íslandi hóta eigin Nóbelshöfundi
Olga Tokarczuk, handhafi Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum, kemur til Íslands í þessari viku til að taka við Alþjóðlegu bókmenntaverðlaunum Halldórs Lax...
Alvarlegt þegar valdamikið fólk gantast með fullveldi Íslands
📅 08.09.2026 👁️ 1
Alvarlegt þegar valdamikið fólk gantast með fullveldi Íslands
Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir fulla ástæðu til að sýna stillingu en taka því alvarlega þegar valdamikið fólk gantast ...
Vill ítarlega samanburðarrannsókn á menntakerfinu
📅 08.09.2026 👁️ 2
Vill ítarlega samanburðarrannsókn á menntakerfinu
Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menntamálaráðherra, telur nauðsynlegt að ráðast í róttækar breytingar í menntakerfinu...
Rukka meira fyrir aksturinn og sér­stak­lega fyrir veginn - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 2
Rukka meira fyrir aksturinn og sér­stak­lega fyrir veginn - Vísir
Þessi lagarök voru sett fram í greinargerð frumvarpsins um innviðafélagið fyrr á árinu. Þar segja stjórnvöld að bann vegalaga við samtímis innheimtu v...
UK announces sanctions on West Bank settlements prompting furious Israeli response
📅 08.09.2026 👁️ 2
UK announces sanctions on West Bank settlements prompting furious Israeli response
Britain's foreign secretary accuses settlers of carrying out the "ethnic cleansing" of Palestinians, as Israel responds by shutting the UK consulate i...