Næsta sunnudag fara fram þing- og sveitarstjórnarkosningar í Svíþjóð. Taugar stjórnmálaflokkanna virðast vera að þenjast til hins ýtrasta en merki eru um bresti í samstöðu hægri flokkanna sem hafa verið við völd í landstjórninni á þessu kjörtímabili. Það gerist á sama tíma og hægri blokkinn hefur unnið á í skoðanakönnunum en vinstri flokkarnir sem hafa haft þægilega forystu í dágóðan tíma hafa gefið eftir.
Kosningaskjálftinn fer vaxandi í Svíþjóð - Brestir í bandalagi hægri manna þótt það sé að vinna á