Gera má ráð fyrir að enn verði tafir á flugi um Bretland og Írland á morgun. Flugsamgöngur þar fóru verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál kom upp í flugumsjónarkerfinu NATS.
Hundruðum flugferða var aflýst um allt Bretland og tugþúsundir farþega urðu fyrir áhrifum raskana á flugi.
Forstjóri NATS baðst afsökunar í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Hún segir að ítarleg rannsókn verði gerð á því hvað hafi farið úrskeiðis. Að sögn forsvarsmanna NATS tók lengri tíma en vonir voru um að leysa vandamálið í kerfinu.
Bilunin í dag hafði áhrif á flugferðir Icelandair til og frá Lundúnum.