Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu hefur hafnað að taka fyrir mál Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis.
Mannréttindadómstóllinn hafði áður sýknað íslenska ríkið af kröfum Lárusar sem taldi brotið á rétti sínum til sanngjarnra réttarhalda með þegar sérfróður meðdómandi var skipaður í Stím-málinu. Lárus fékk fimm ára dóm í Héraðsdómi fyrir sinn þátt í málinu.
Í framhaldi fól Lárus lögmanni sínum að óska eftir að málinu yrði vísað til yfirdeildar dómstólsins en því hefur nú verið hafnað.