Í Bordeaux hafa þúsundir fengið skjól í sýningarhöll borgarinnar, sem opnuð var sem fjöldahjálparstöð í gær. Íbúar þorpa vestur af Bordeaux hafa þurft að yfirgefa heimili sín, sem og fólk frá Cap Ferret, vinsælum sumarleyfisstað á ströndinni rétt hjá. Alls hafa um tvö hundruð þúsund manns þurft að flýja þetta ástand.
Eldarnir hafa geisað undanfarna daga vestur af Bordeaux og hundruð slökkviliðsmanna hafa barist við þá. 1500 hermenn hafa verið sendir til aðstoðar, og í dag sendi franski flugherinn eina af sínum stærstu flutningavélum - hún bætist í flota flugvéla sem notaðar eru til að berjast við skógareldana.
Sebastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands hefur setið á neyðarfundum vegna ástandsins, og Emmanuel Macron Frakklandsforseti lýsti því yfir í dag að öll nauðsynleg aðstoð yrði veitt.
Dans ces heures où les flammes éprouvent durement notre pays, la France révèle ce qu’elle est : un peuple uni, qui se serre les coudes.
— Emmanuel Macron (@EmmanuelMacron) July 25, 2026
Merci à nos sapeurs-pompiers, à nos militaires, aux forces de sécurité civile, à nos gendarmes et policiers, ainsi qu’aux agriculteurs… pic.twitter.com/DFzPt8vSYM
Á Spáni hafa slökkviliðsmenn barist við skógarelda vestur af Madrid; þar geisuðu þrír eldar, sem nú hafa náð saman. Stjórnvöld hafa þó gefið vonir um að aðstæður gætu verið að batna, þótt lítil sem engin rigning sé í kortunum næstu daga.
Vitað er með vissu um eitt dauðsfall af völdum skógareldanna; slökkviliðsmenn í þorpinu Manises nálægt Valencia, fundu lík hans í bifreið.
Um 98.000 hektarar lands (um 980 ferkílómetrar) eru brunnir í Frakklandi, og vestur af Madrid hafa um 250 ferkílómetrar lands brunnið.