Að minnsta kosti 180 eru látnir eftir hamfaraflóðið í Nepal í gær og yfir 1.300 er saknað, flestir þeirra ferðamenn. Svæðið er vinsælt meðal göngu- og útivistarfólks og pílagríma.
Flestir þeirra sem saknað er eru erlendir ferðamenn frá 28 löndum og er fólksins leitað beggja megin landamæranna milli Nepal og Tíbet.
Engar beiðnir um aðstoð höfðu borist borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins frá íslenskum ríkisborgurum vegna náttúruhamfaranna, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu í gær.
Þyrlur eru notaðar til leitar að fólkinu og til að dreifa neyðaraðstoð. Bandaríkin hafa heitið nærri 500 þúsund dollurum í neyðaraðstoð og Indland hefur sent tíu tonn af neyðaraðstoð. Evrópusambandið, Kína, Bretland og Kanada hafa einnig heitið aðstoð eða eru að senda birgðir á vettvang.
Vísindamenn eru að reyna að kortleggja atburðarásina og ástæður flóðsins.
Fréttin hefur verið uppfærð með fjölda þeirra sem saknað er.