Þetta er í fyrsta sinn í sjö ár sem Xi fer til Norður-Kóreu en leiðtogarnir hittust síðast í Peking í september, þegar Kim fór þangað og virti fyrir sér hersýningu með Xi, Vladimír Pútín og öðrum leiðtogum.
Þar virtist vel tekið á móti honum og Peng Liyuan, eiginkonu hans. Kim og Ri Sol Ju, eiginkona hans, biðu þeirra á flugvellinum en síðar var svo haldin opinber athöfn í Pyongyang.
Ríkismiðlar Kína segja að Xi hafi sagst vilja styrkja samband ríkjanna á ýmsum sviðum. Hann vilji auka viðskipti milli ríkjanna, tækniþróun og samstarf í landbúnaði, svo eitthvað sé nefnt. Þá nefndi hann einnig aukið samstarf í varnarmálum og að ríkin gætu unnið saman að því að vernda fullveldi þeirra og hagsmuni.
AP fréttaveitan hefur eftir Kim að heimsókn Xi sýni fram á órjúfanlegt vinasamband ríkjanna og að hann vilji taka þá vináttu á næsta plan.
Hér að neðan má sjá myndefni frá Norður-Kóreu í morgun.
Hafa áhyggjur af Rússum
Ráðamenn í Kína eru, samkvæmt BBC, sagðir hafa áhyggjur af auknum umsvifum Rússa í Norður-Kóreu og er Xi sagður vilja styrkja ítök Kínverja þar á nýjan leik. Á undanförnum árum hefur Kim sent mikið magn hergagna og vopna til Rússlands, sem notað hefur verið við innrásina í Úkraínu. Þar að auki sendi hann einnig hermenn sem aðstoðuðu Rússa við að reka úkraínska hermenn á brott frá Kúrsk-héraði í Rússlandi í fyrra.
Í skiptum fyrir hergagnasendingar og vopnasölu er Kim sagður hafa fengið umtalsverða aðstoð frá Rússlandi, bæði efnahagslega og hernaðarlega, auk þess sem rússneskir ferðamenn hafa ferðast til ríkisins einangraða.
Sjá einnig: Kim ánægður með nýjar stýriflaugar
Rússar eru sagðir hafa gert Kóreumönnum kleift að nútímavæða loftvarnir sínar og aðra hluta herafla Kims eins og eldflaugar, kafbáta og annað. Á sama tíma hefur þróun kjarnorkuvopna haldið áfram.
Sjá einnig: Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim
Kóreumenn hafa einnig fengið matvæli og olíu frá Rússlandi á undanförnum árum.
Viðskiptin við Rússland og Kína hafa veikt alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn einræðisríkinu verulega og aukið tekjur ríkisins. Tekjur ríkisstjórnar Kims af tölvuárásum norðurkóreskra hakkara, sem halda flestir til í Kína, eru einnig mjög miklar.
Samhliða þessari þróun hefur efnahagur Norður-Kóreu einnig tekið töluverðum stakkaskiptum.
Pyongyang óþekkjanleg
Þegar Covid lék heimsbyggðina grátt lokaði Kim landamærum Norður-Kóreu alfarið og herti tökin verulega á öllum öngum samfélagsins, þó tökin hafi verið gífurleg fyrir.
Eins og fram kemur í grein New York Times voru landamæravörðum gefnar skipanir um að skjóta alla sem reyndu að flýja yfir þau og var farið í sérstakt átak gegn smygli og ósamþykktum viðskiptum innan ríkisins.
Smygl á alls konar afþreyingarefni frá Kína og Suður-Kóreu hefur einnig verið tekið fastari tökum. Fólk hefur verið tekið af lífi á almannafæri fyrir það að smygla þáttum af suðurkóreskum sápuóperum eða tónlist (K-pop) til Norður-Kóreu.
Með þessum aðgerðum hefur þjóðin í raun verið þvinguð til að reiða sig minna á innflutning og auka framleiðslu heimafyrir. Kim hefur lagt sérstaklega mikla áherslu á að auka sjálfbærni.
Kim lýsti því yfir fyrr á árinu á allsherjarþingi Kommúnistaflokks Norður-Kóreu að ríkið hefði nú gengið inn í nýtt tímabil velmegunar. Flokkurinn sagði fólk nú geta vonast eftir bæði „sætindum og byssukúlum“. Það er að segja að hægt sé að leggja bæði áherslu á hernaðaruppbyggingu og almennan efnahag.
Þó fátækt sé enn mikil víðast hvar í Norður-Kóreu hefur höfuðborgin breyst gífurlega, samkvæmt greinendum og öðrum sem þekkja til. Wall Street Journal tók til að mynda viðtal við ástralskan mann sem hefur farið oftar en hundrað sinnum til Norður-Kóreu.
Hann heitir Rowan Beard og segir Pyongyang hafa breyst gífurlega hratt og hún sé nánast óþekkjanleg miðað við hvernig hún var fyrir nokkrum árum en hann heimsótti borgina síðast fyrir Covid.
Hann segir að þar sé til að mynda nú hægt að nota forrit sambærilegt Uber til að panta leigubíl. Kínverskum rafmagnsbílum er ekið um götur borgarinnar og hægt er að greiða fyrir vörur og þjónustu með snjallsímum.
Þá hefur veitingastöðum og verslunum fjölgað og má nú einnig finna netkaffi í höfuðborginni, sem hefur einnig stækkað gífurlega hratt. Bara í fyrra voru byggð um tíu þúsund ný heimili í Pyongyang.
Hugveitur frá Suður-Kóreu benda einnig á að gervihnattamyndir af Norður-Kóreu sýni aukna umferð við olíugeymslustöðvar, þéttari umferð í Pyongyang og meira nýtt bílastæði. Þá sé Pyongyang um þrisvar sinnum bjartari að nóttu til en hún var fyrir einungis fimm árum.
Utan höfuðborgarinnar eru aðstæður þó ekki eins góðar. Sameinuðu þjóðirnar segja að tæplega ellefu af 26 milljónum íbúa Norður-Kóreu glími við vannæringu. Þá er landsframleiðsla Norður-Kóreu innan við prósent af landsframleiðslu Bandaríkjanna.