Naim Qassem, leiðtogi Hisbollah-samtakanna, sagði í dag að hann vonaðist til þess samkomulag næðist milli Írans, sem styður samtökin, og Bandaríkjanna og að Líbanon yrði hluti af skilmálum þess.
„Ef Guð lofar verður gengið frá þessu samkomulagi og merki eru um að það sé að nást, og að við föllum einnig undir það samkomulag – samkomulag um algjört vopnahlé,“ sagði hann í sjónvarpsávarpi.
Íranska fréttastofan Tasnim greindi frá því að „fyrst yrði tilkynnt um viljayfirlýsingu þar sem lögð yrði áhersla á að binda enda á bardaga á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon“, á meðan Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði ítrekað stuðning sinn við rétt Ísraels til að verja sig gegn ógnum, þar á meðal frá Hizbollah.
Markmiðum Bandaríkjanna náð
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði fyrr í dag að tilkynningar væri mögulega að vænta í dag um samkomulag við Íran, sem gæti formlega bundið enda á stríðið í Miðausturlöndum. Fullyrti ráðherrann að markmiðum Bandaríkjanna hafi verið náð.
Þá sagði Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, að Íran væri á lokametrunum að ganga frá viljayfirlýsingu við Bandaríkin.