Leopardus tilcayo er kattartegund sem uppgötvaðist nýverið. Hann er tignarlegur en smár í sniðum, 46 cm að lengd og vegur um 1,3 kíló.
Þessi áður óþekkta kattartegund fannst í fjallendi Bólivíu á verndarsvæði fyrir villt dýr. Þetta er í fyrsta sinn í meira en öld sem vísindamenn uppgötva nýja tegund villikatta. Heimamenn þekkja vel til kattarins en það var fyrst í síðustu viku sem rannsóknir staðfestu að tegundin væri ný.
Líffræðingurinn Enzo Aliaga-Rossel er annar tveggja vísindamanna sem stóðu að uppgötvuninni. Erfðaefni dýrsins var greint í þaula og það er af ætt sem finnst víðar í Suður-Ameríku. Vísindamenn vonast til að uppgötvunin hjálpi til í baráttunni við að vernda skógarsvæðið sem dýrið býr á en það er í hættu vegna eyðingar skógarins og námuvinnslu.