Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mælir á Alþingi í dag fyrir frumvarpi sem afnemur sektir við vændiskaupum. Verði það að lögum verður fangelsi eina refsingin sem lögin gera ráð fyrir fyrir að kaupa vændi og hámarksrefsing fyrir að kaupa vændi af barni hækkar úr tveimur árum í fjögur.
Frumvarpið var lagt fram 29. október. Fyrsta umræða er fjórða mál á dagskrá þingfundar sem hefst klukkan 13:30.
200 þúsund króna sekt víkur
Samkvæmt 206. grein almennra hegningarlaga getur sá sem greiðir fyrir vændi nú sætt sektum eða fangelsi allt að einu ári. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að í framkvæmd leiði fyrstu brot til 200.000 króna lögreglustjórasektar, samkvæmt fyrirmælum ríkissaksóknara og reglugerð.
Frumvarpið fellir orðin „sektum eða“ brott úr ákvæðinu. Hámarksrefsing fyrir að kaupa vændi af fullorðnum helst eitt ár en lágmarkið verður samkvæmt almennum reglum hegningarlaga 30 daga fangelsi. Hægt verður að skilorðsbinda dóma og skýlaus játning getur áfram stytt málsmeðferðina.
Mestu munar þó að ekki verður lengur hægt að ljúka málum með sekt hjá lögreglustjóra. Þau fara þá í ákæru og fyrir dómstóla.
Þorbjörg lýsti þessu sjálf í Kastljósi RÚV í apríl þegar hún boðaði breytinguna:
„Menn geta í dag, ef þeir eru teknir fyrir vændiskaup, þá fara þeir til lögreglunnar og borga sekt. Og þeir bruna til lögreglunnar og borga sektina því þeir vilja ekki að málið fari neitt lengra.“
Fjögur ár í stað tveggja
Í öðrum lið ákvæðisins er fjallað um kaup á vændi af barni undir 18 ára aldri. Þar er hámarksrefsingin nú tvö ár en verður fangelsi allt að fjórum árum. Samkvæmt greinargerðinni er það sama hámark og gildir um að tæla barn til kynmaka samkvæmt 3. málsgrein 202. greinar, auk þess sem sænsk lög voru höfð til hliðsjónar.
Gáleysi um aldur barnsins nægir til sakfellingar en þá er refsingin vægari. Í greinargerðinni segir að enginn þeirra sem sendu umsögn hafi lagst gegn því að refsirammi brota gegn börnum yrði endurskoðaður.
Líka refsivert að kaupa handa öðrum
Frumvarpið bætir tveimur atriðum við ákvæðið. Refsivert verður að kaupa vændi handa öðrum og að þiggja vændi sem annar maður greiðir fyrir eða heitir greiðslu fyrir. Í greinargerðinni segir að slík háttsemi sé refsiverð í Svíþjóð og Noregi og að Svíar hafi gert sambærilegar breytingar á hegningarlögum sínum árið 2025.
Lögin hafa ekki upprætt vændi
Bann við kaupum á vændi var lögfest hér á landi árið 2009 að sænskri fyrirmynd til að draga úr eftirspurn. Í greinargerðinni er viðurkennt að ekki hafi tekist að uppræta vændi á Íslandi. Lögreglan telur að skipulögð brotastarfsemi standi að stórum hluta að baki því og grunur leikur á að stór hluti kvennanna sé þolendur mansals.
Frumvarpið var samið af refsiréttarnefnd að beiðni dómsmálaráðuneytisins. Áform um það fengu 36 umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda í sumar og drögin 11 til viðbótar í haust.
Sumir umsagnaraðilar vildu fella brott bann við kaupum á vændi af fullorðnum. Í greinargerðinni segir að sjónarmiðin vegist á: annars vegar að þyngri viðurlög geti dregið úr eftirspurn og hins vegar að þau geti skert öryggi þeirra sem selja vændi.
Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur varaði við því í samtali við Vísi í lok september að þyngri refsingar „geti jafnvel gert aðstæður seljenda enn erfiðari og hættulegri“. Hann taldi vafasamt að þær séu rétta leiðin gegn mansali. Í könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem Helgi vann ásamt Jónasi Orra Jónassyni, sögðust 65 prósent styðja að kaupendur vændis séu refsiverðir. Stuðningurinn var 84 prósent meðal kvenna en 47 prósent meðal karla.
Frumvarpið tekur gildi þegar í stað verði það að lögum. Í greinargerðinni er ekki gert ráð fyrir sérstökum kostnaði af því en tölfræði verður safnað hjá lögreglu, Bjarkarhlíð og Stígamótum.