Aðstandendum hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi hefur verið tilkynnt að því verði lokað á næsta ári. Skortur er á hjúkrunarrýmum og ráðherra kynnti áætlun um uppbyggingu í mars. Þá voru yfir sjö hundruð á biðlista. Á Ljósheimum á Selfossi eru tuttugu hjúkrunarrými.
Systurnar Steinunn Kristín og Jóna Kristbjörg Hafsteinsdætur eiga foreldra sem búa á Ljósheimum. Þau fluttu þangað síðasta haust eftir að hafa verið inn og út af spítala um hríð. Þær hafa áhyggjur af lokuninni og því sem taki við. Þær segja mjög vel hugsað um foreldra sína á Ljósheimum.
„Mamma er mjög sátt og líður rosalega vel þar sem þau eru núna. Og pabbi er svona alveg að verða sáttur og þá náttúrulega skella á einhverjar breytingar,“ segir Steinunn Kristín.
Á þriðjudaginn í síðustu viku var þeim tilkynnt um lokunina. Íbúum hefur þó ekki enn verið tilkynnt um áformin. Steinunn býst ekki við jákvæðum viðbrögðum foreldra sinna.
„Ég hugsa að mamma verði bara mjög kvíðin. Pabbi verður örugglega bara mjög reiður býst ég við.“
Húsnæðið komið til ára sinna
Systurnar vilja að leitað verði leiða til þess að koma í veg fyrir að loka þurfi hjúkrunarheimilinu. Þær segjast ekki vita hvaða hjúkrunarheimili standi foreldrum þeirra til boða þegar þar að kemur. Þeim hafi verið sagt að þau myndu flytja innan Suðurlands, sem spanni mjög stórt svæði, allt austur að Kirkjubæjarklaustri.
„Maður vonar náttúrulega að þau fái bara að vera áfram saman, ekki að tvístra í sitthvora áttina því maður veit að það hefur verið gert, því miður,“ segir Jóna Kristbjörg.
Forstóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands segir í pósti til starfsmanna í dag að unnið hafi verið að undirbúningi stækkunar og endurnýjunar á húsnæði starfseminnar á Selfossi um árabil. Núverandi húsnæði sé víða komið til ára sinna og löngu orðið ljóst að ráðast þurfi í verulegar úrbætur til að mæta þörfum þjónustunnar til framtíðar. Breytingarnar fela í sér að starfsemi á Ljósheimum verði lögð niður. Hún áréttar þó að þrátt fyrir að undirbúningur sé hafinn sé ljóst að framkvæmdir hefjist ekki fyrr en í fyrsta lagi 2027.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands og heilbrigðisráðherra gáfu ekki kost á viðtali.