Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir það liggja fyrir svart á hvítu að forsendur kjarasamninga séu brostnar.Vilhjálmur skrifar harðorða færslu á Facebook þar sem hann gerir nýjustu verðbólgutölur Hagstofunnar að umtalsefni, en þær birtust í morgun. Verðbólga hefur ekki mælst meiri í tvö ár og mælist tólf mánaða verðbólga nú 5,6%. Í síðasta mánuði mældist verðbólga 5,3%.
Vilhjálmur sótillur eftir tíðindi dagsins – „Hreint út sagt sorglegt”