Vildu ekki koma aftur til Íslands með 100 manna hóp
Vilborg Arna Gissurardóttir tók á móti 100 frönskum konum sem komu hingað til að keppa í vetraríþróttum. Tollagjöldin komu í bakið á skipuleggjendum mótsins sem ákváðu að fara næst til Finnlands. Finnar hafa nýtt styrki ESB við uppbyggingu heimskautaferðamennsku, en Vilborg vann að verkefni í byggðaþróun á Suðurlandi sem fékk 100 milljóna styrk þegar Ísland var síðast í aðildarviðræðum.
Þegar 100 franskar konur komu til Íslands til þess að keppa í vetraríþróttum beið þeirra veglegur gjafapoki á hótelherberginu, sem innihélt meðal annars dýrar úlpur. Það sem skipuleggjendur mótsins áttuðu sig ekki á var að með því að afhenda gjafapokana hér á landi en ekki á flugvellinum í Frakklandi þurftu þeir að greiða toll af innfluttum vörum.
Vilborg Arna Gissurardóttir sá um undirbúning og móttöku hópsins hér á landi en hún rak ferðaþjónustu á þeim tíma. Verkefnið kom í gegnum franska ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í að halda viðburði. Árlega fer fram íþróttamót fyrir konur, oft í tengslum við góðan málstað, í þessu tilviki brjóstakrabbamein.
Konurnar sem hingað komu kepptu í tveggja manna liðum í utanvegahlaupum, annars vegar á jafnsléttu við Gullfoss og hins vegar hluta af Fimmvörðuhálsi, gönguskíðamótum og snjóþrúguhlaupum, á milli þess sem þær stunduðu jöklagöngur, ísklifur og aðra afþreyingu. „Dagurinn endaði alltaf með einhverri afþreyingu. Þetta var …