„Það er búið að vera mikið rót. Við ætlum okkur að hafa festu og vinnufrið svo við getum látið verkin tala,“ segir Hildur Björnsdóttir, verðandi borgarstjóri í Reykjavík. Hún segir litla þörf hafa verið fyrir málamiðlanir í viðræðum um nýjan meirihluta í borgarstjórn sem kynntur var í dag.
„Við ætlum að vinna hratt, ganga rösklega til verks,“ segir Hildur. Nýr meirihluti hyggst, að hennar sögn, taka stórar ákvarðanir í samgöngumálum, skipulagi nýrra hverfa og hagræðingu.
Fyrsta verk hennar sem nýr borgarstjóri verður að eiga samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun og fjármögnun samgöngusáttmálans. Þá ætlar hún að ganga rösklega til verks í hagræðingu og auglýsa strax eftir samtali við vinnustaði um opnun daggæslu og leikskóla.
Vill selja Carbfix og Ljósleiðarann
Hildur ætlar að leggja til að Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, verði stjórnarformaður í Orkuveitu Reykjavíkur. Hún segir það ekki sárabætur vegna þess að Miðflokkurinn rataði ekki inn í meirihlutann.
„Það verður mjög gott fyrir Reykvíkinga ef Ari tæki að sér þetta verkefni,“ segir hún. Innan Orkuveitunnar þurfi að hennar mati að taka til. „Við ætlum okkur að hefja söluferli á Ljósleiðaranum og Carbfix, það þarf að ráðast í tiltekt.“ Að hennar mati er Ari besti maðurinn til að ráðast í þau verkefni.
Kjartan og Marta höfðu ekki úrslitaáhrif
Hildur segir aðspurð að skeytasendingar úr ranni Miðflokksins hafi ekki hafa spilað inn í að flokkurinn hafi lent í minnihluta. „Það hafði sannarlega ekki áhrif. Þetta er gríðarlega stór ákvörðun að mynda meirihluta, svona tíst hefur engin áhrif á það.“
Tveir borgarfulltrúar sögðu skilið við borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins í vor og gengu síðar til liðs við Miðflokkinn eftir að hafa ekki fengið sæti á lista fyrir kosningarnar. Annar þeirra, Marta Guðjónsdóttir, gagnrýndi harðlega uppstillinguna í Reykjavík. „Það var allt lýðræðið þurrkað út á öllum stigum málsins,“ sagði hún við Vísi í mars.
Ósátt við veggjöld
Hildur telur að samhljómur verði á milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um endurskoðun samgöngusáttmála en Sjálfstæðismenn eru nú í meirihluta í þeim öllum. Hún segir að næst þurfi að eiga samtal við sveitarfélögin, fjármálaráðherra og ríkisstjórnina um hann.
„Við höfum verið alveg skýr á því að við erum ósátt við að hér verði lögð á veggjöld á höfuðborgarsvæðinu. Við viljum flýta Miklubrautargöngum,“ segir hún.