Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagn­rýna ICE á netinu - Vísir

Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagn­rýna ICE á netinu - Vísir

Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagn­rýna ICE á netinu - Vísir

Ráðuneytið og þá sérstaklega ICE hefur greitt einkafyrirtækjum til að sjá um þetta eftirlit en því er meðal annars ætlað að finna ógnir gegn starfsmönnum þess og aðgerðum starfsmanna víðs vegar um Bandaríkin.

Samkvæmt frétt Wall Street Journal safna þessir verktakar, með ráðuneytinu, upplýsingum um bandaríska ríkisborgara sem tjá sig um starfsemi ráðuneytisins og aðgerðir gegn innflytjendum og fólki sem dvelur ólöglega í Bandaríkjunum. Meðal þeirra upplýsinga sem safnað er um viðkomandi eru nöfn þeirra, staðsetning, aldur, vinnustaður, kennitölur, bílaskráningar og jafnvel upplýsingar um sakaskrá.

WSJ segir ICE hafa vopnvætt samfélagsmiðla gegn bandarískum ríkisborgurum.

Starfsmenn ráðuneytisins hafa sent hundruð stefna til samfélagsmiðlafyrirtækja í Bandaríkjunum og krafist þess að fá nöfn þeirra sem eiga tiltekna reikninga. Útsendarar þess hafa svo elt stóran hluta þessa fólks uppi og beðið það um að skrifa undir yfirlýsingar þar sem það gengst við því að því hafi verið tilkynnt að ummæli þess og færslur um störf ICE gætu verið glæpur.

Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn WSJ segir að þetta eftirlit eigi að draga úr meintum samhæfðum ofbeldisógnunum gegn starfsmönnum þess og fjölskyldum þeirra. Þá er því haldið fram að slíkt ofbeldi hafi aukist um átta þúsund prósent frá því Donald Trump tók aftur við ofbeldi.

Lögmenn og aðgerðasinnar segja hins vegar að með þessu sé ítrekað verið að brjóta á stjórnarskrárbundnu tjáningarfrelsi bandarískra ríkisborgara.

Einn lögmaður sem hefur tekið að sér mál nokkurra sem hafa lent í neti ráðuneytisins segir að fyrir sér virðist þetta lítið annað en að starfsmenn ráðuneytisins séu að reyna að refsa fólki fyrir að segja „óþekka“ hluti um ICE-liða. Ekki sé um einhvers konar hótanir að ræða.

WSJ segir að á fyrsta ári Trumps í embætti hafi ICE varið um 258 milljónum dala í stafrænt eftirlit, sem sé um 57 prósenta aukning frá árinu áður. Að minnsta kosti sex samningar hafa verið gerðir við verktaka sem hafa það starf að safna áðurnefndum upplýsingum um fólk og reyna að finna það.

Sitja á fúlgum fjár

Heimavarnaráðuneytið (DHS) heldur utan um aragrúa alríkisstofnana en auk ICE er það hvað helst Landamæraeftirlit Bandaríkjanna (CBP) sem hefur komið að aðgerðunum í Minnesota. Í daglegu tali hafa útsendarar allra þessara stofnana gjarnan verið kallaðir ICE-liðar.

Störf þessara útsendara hafa á undanförnum mánuðum verið verulega umdeild en þá sérstaklega þegar tveir bandarískir borgarar voru skotnir til bana í Minnesota í vetur.

Í fyrsta fjárlagafrumvarpi Donalds Trump á þessu kjörtímabili fékk heimavarnaráðið gífurlega stóra fjárveitingu eða um 75 milljarða dala. Það samsvaraði á sínum tíma rúmum níu billjónum króna (tólf núll). Þar af fóru þrjátíu milljarðar dala til ICE.

Með því vildu Trump-liðar auðvelda stofnunum ráðuneytisins að finna fólk sem dvelur í Bandaríkjunum ólöglega og vísa því úr landi.

Hluti þessara peninga var notaður í að fjölga starfsmönnum ICE og annarra stofnana verulega.

ICE hefur lengi notað eftirlitshugbúnað og gervigreind til að vakta fólk og safna upplýsingum um það. NPR sagði frá því fyrr á árinu að kona sem hafði veitt starfsmönnum ICE eftirför varð fyrir því að grímuklædd kona sem starfar fyrir ICE kallaði nafn hennar og heimilsfang.

NPR sagði þá að margir aðrir hefðu svipaðar sögur að segja og að starfsmenn ICE notuðu sérstakt símaforrit til safna saman upplýsingum um fólk og bera kennsl á það í rauntíma.

Fjárútlát til bandarískra tæknifyrirtækja sem sérhæfa sig meðal annars í stafrænu eftirliti og að safna upplýsingum úr gagnagrunnum ríkisins hafa aukist til muna á þessu kjörtímabili Trumps.

Nota ákærudómstóla til að fá nöfnin

Samkvæmt heimildum WSJ hefur ráðuneytið krafist þess að fá raunveruleg nöfn að minnsta kosti ellefu aðila sem hafa tjáð sig um ICE á Reddit, á þeim grunni að þau hafi verið gagnrýnin á aðgerðir ráðuneytisins.

Í öllum tilfellum munu starfsmenn samfélagsmiðilsins vinsæla hafa komist að þeirri niðurstöðu að ummælin væru vernduð af stjórnarskrá Bandaríkjanna og ekki ógnanir og var kröfunum hafnað.

Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur einnig notast við svokallaða ákærudómstóla til að reyna að svipta hulunni af fólki. Það hefur í einhverjum tilfellum skilað árangri.

Ákærudómstólar eru sérstök bandarísk fyrirbæri þar sem saksóknarar fá almenna borgara til að mynda kviðdóm og fara yfir sönnunargögn og vísbendingar sem búið er að afla í tilteknum málum og segja til um hvort tilefni sé til að leggja fram ákærur, í einföldu máli sagt.

Mikil leynd hvílir yfir störfum ákærudómstóla og upplýsingar úr slíkum rannsóknum eru sjaldan sem aldrei birtar.

Í einu tilfelli þar sem ákærudómstóll virkaði var um að ræða konu sem líkti starfsmönnum ICE við nasista og sagði að réttast væri að lóga þeim öllum eins og hundum. Útsendarar ICE heimsóttu hana og skömmuðu hana en hún hefur ekki verið ákærð.

Þá hafa aðrir lent í vandræðum fyrir að birta upplýsingar um hvar útsendarar ICE eru að störfum en einnig nöfn þeirra og heimilisföng. Innan ríkisstjórnar Trumps er litið á birtingu slíkra upplýsinga, sem á ensku kallast doxxing, sem form hryðjuverka.

Ráðuneytið hefur einnig gefið út að það að taka myndir og myndbönd af starfsmönnum ICE við störf flokkist undir „doxxing“.

Vonaði að banamaður Good endaði í fangelsi

Þegar Jonathan Ross, starfsmaður ICE, skaut Renee Good til bana í Minnesota í janúar lögðu forsvarsmenn DHS mikið kapp á að ekki væri hægt að bera kennsl á hann. Fjölmiðlar vestanhafs gerðu það þó samt og brugðust áðurnefndir forsvarsmenn reiðir við því.

DHS hefur haldið því fram að Ross hafi skotið Good í sjálfsvörn en það er mjög svo umdeilt. Honum hefur ekkert verið refsað.

Þá hefur ráðuneytið reynt að hafa uppi á fólki sem birt hefur áður opinberar upplýsingar um Ross á samfélagsmiðlum. Í einu slíku tilfelli var farið fram á við Reddit að opinbera nafn þess sem skrifaði þar undir nafninu Tired_Thumb.

Sá hafði nefnt ICE í þremur færslum en í einni þeirra, sem var svar við öðrum ummælum um að Ross myndi líklega flytja til Flórída og verða hylltur þar sem hetja, sagði Tired_Thumb að vonandi myndi Ross flytja í fangelsi.

Hann hafði einnig birt símanúmer ICE-liða, sem hann fann í opinberum gögnum á netinu, og sagt að leggja ætti stofnunina niður auk þess sem öll landamæri ættu að heyra sögunni til.

Fyrsta stefnan sem átti að varpa ljósi á Tired_Thumb var dregin til baka og þess í stað leitað til ákærudómstóls. Ráðuneytið er enn að reyna að fá upplýsingar um viðkomandi.

Fékk heimsókn fyrir að senda tölvupóst

Í öðru tilfelli mættu starfsmenn ICE á vinnustað konu í New York og héldu því fram að hún hefði mögulega verið að brjóta lög með færslum sínum á samfélagsmiðlum. Þeir sýndu henni skjöl sem innihéldu mikið af persónuupplýsingum hennar og mynd sem virðist hafa verið tekin með öryggismyndavél á flugvelli.

Skjölin innihéldu einnig mynd af færslu þar sem hún átti að hafa birt mynd af Jonathan Ross og hver hann væri. Það er færsla sem hún kannast ekki við að hafa nokkurn tímann birt.

Í öðru tilfelli fundu útsendarar ICE mann sem heitir David Streever þar sem hann var í fríi. Það var fimm mánuðum eftir að hann hafði sent tölvupóst á Todd Lyons, þáverandi yfirmann ICE, og kallað hann hræðilega manneskju.

Þann póst sendi Streever skömmu eftir að starfsmenn Landamæraeftirlits Bandaríkjanna (CBP) skutu Alex Pretti til bana í Minnesota. Pretti var með byssu, sem hann hafði leyfi til að bera samkvæmt lögum og mundaði aldrei, og er útlit fyrir að hann hafi verið afvopnaður áður en hann var skotinn í bakið.

Strax eftir að Pretti var skotinn til bana lýstu forsvarsmenn DHS og aðrir embættismenn því yfir að alríkisútsendarar hefðu óttast um líf sitt eftir að maður vopnaður skammbyssu nálgaðist þá en streittist á móti þegar reynt var að afvopna hann.

Kristi Noem, þáverandi heimavarnaráðherra, og fleiri staðhæfðu að Pretti hefði ætlað sér að myrða alríkisútsendara.

Streever hefur höfðað mál gegn heimavarnaráðuneytinu og segir að hegðun starfsmanna þess sé vítaverð. Eina markmið hennar sé að reyna að stöðva umræðu sem varin sé af stjórnarskrá Bandaríkjanna.

Einn lagaprófessor sem sérhæfir sig í mannréttindum og friðhelgi einkalífs segir í samtali við WSJ að verið sé að vopnvæða löggjöf um einkaupplýsingar. Þá bendir hún á að ef útsendarar ICE og annarra stofnana DHS væru ekki markvisst að reyna að fara huldu höfði, meðal annars með því að bera grímur og vera ekki merktir, væri líklega minna um það að fólk væri að reyna að bera kennsl á þá og dreifa upplýsingum um þá.

Alríkisdómari í New York komst að þeirri niðurstöðu í gær að ráðamönnum þar væri ekki heimilt að meina útsendurum alríkisins, eins og starfsmönnum ICE, að vera með grímur. Áður hafði dómari fellt úr gildi sambærileg lög í Kaliforníu.

#fjár #fúlgum #hafa #upp #verja


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262916984d/verja-fulgum-fjar-i-ad-hafa-upp-a-theim-sem-gagnryna-ice-a-netinu

📰 Aðrar fréttir

Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ...
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
Ung móðir í New York kastaði upp af geðshræringu þegar hún heyrði hversu vægan fangelsisdóm maðurinn sem stakk hana 22 sinnum með hnífi hafði hlotið. ...
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
Einar Logi Pétursson hefur birt umdeild myndskeið úr tveimur svínabúum Stjörnugríss þar sem meðal annars mátti sjá dauð svín og með áverka.  Sjá einni...
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
📅 06.11.2026 👁️ 1
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
Það er aldrei skemmtilegt að skilja, sérstaklega þegar deilt er um skiptingu eigna. Að meginreglu er eignum skipt í helminga eftir svokallaðri helming...
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
📅 06.11.2026 👁️ 2
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
The attack happened last month at the family home on the outskirts of Waterford in the Republic of Ireland.
Snjórinn féll á Dönsku kránni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Snjórinn féll á Dönsku kránni
Sala á jólabjór Tuborg hófst í kvöld, sem er orðinn hluti af jólaundirbúningi margra. J-dagurinn, sem er stytting á julebryg dag, eða „jólabjórsdagur“...
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
📅 06.11.2026 👁️ 2
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
The 82-year-old was arrested in Florida after the FBI searched two Los Angeles-area storage units he rented.
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
Garpur Elísabetarson og dóttir hans báru bæði vitni fyrr í vikunni þar sem þau greindu frá meintu umsáturseinelti af hálfu Írisar Helgu. Sögðu þau frá...
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
Snorri Jakobsson hagfræðingur segir að hræðsla við hertar reglugerðir gagnvart gagnaverum og gervigreindarfyrirtækjum valdi fallinu sem varð á gengi b...
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, tekur upp hanskann fyrir Sjálfstæðismenn vegna þeirra fjölmörgu fyrirspurna sem Guðlaugur Þór Þór...
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand, sem hefur verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot, var aðeins 17 ára þegar faðir hans keypti vændi...
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
📅 06.11.2026 👁️ 3
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
Einar Logi Pétursson, sem var handtekinn vegna innbrota og sleppinga dýra á nokkrum búum á Kjalarnesi, birti myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjör...
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í viðtali Heimildarinnar við foreldra Hönnuh, þau Samönthu og Gregory Lane.  Hannah Jane Large lést ásamt tveimur ö...
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
Ólga og mótmæli hafa verið í Paragvæ í vikunni eftir að seðlabankinn tók yfir stærsta banka landsins, Ueno-banka.Nær helmingur Paragvæ-búa var í viðsk...
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
📅 06.11.2026 👁️ 4
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands segir aðbúnað dýra á búi Stjörnugríss ekki standast núgildandi reglugerð um velferð sví...
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
Þetta kemur fram í farsóttarfréttum embættis landlæknis þar sem segir að þátttaka í bólusetningum gegn Covid-19 bólusetningum hafi farið minnkandi og ...
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
Ferðalög eru ekki alltaf einföld. Sérstaklega ekki til framandi og fjarlægra landa þar sem aðstæður eru ekki eins og fólk er vant. Fyrir marga ferðame...
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
📅 06.11.2026 👁️ 5
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
Testósteróngildi að degi til lækkuðu um 10-15% hjá tíu ungum, heilbrigðum körlum sem fengu aðeins fimm tíma svigrúm til svefns á nóttu í tilraun við C...
Kourani er enn að hrella Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 4
Kourani er enn að hrella Íslendinga
Sprengjuhótanir hafa borist opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum undanfarna daga, en málin eru til rannsóknar lögreglu. RÚV greinir frá því ...
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
📅 06.11.2026 👁️ 2
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
The Duke of Sussex and other public figures lost a High Court case against the publisher of the Daily Mail and Mail on Sunday.
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
 „Mér er ánægja að tilkynna að Stephen Miller, núverandi aðstoðarstarfsmannastjóri Trump-stjórnarinnar og einn af mínum traustustu ráðgjöfum, verður s...
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
Þær Katrín Lilja, Guðlaug Esther, Bergdís, Klara og Katrín Líf skipa danshópinn Dans án hindrana.Þær eru á aldrinum 11 til 18 ára, æfa hjá Danslistars...
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
Einar Logi hefur vakið mikla athygli eftir að hann birti tvö myndskeið úr svínabúum Stjörnugríss á Instagram og Facebook þar sem meðal annars má sjá d...
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Saksóknarar höfðu farið fram á dauðarefsingu gegn Mackenzie og lífstíðardóm fyrir hina 28. Sum barnanna voru bundin á meðan þau sveltu til dauða. Yfir...
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
📅 06.11.2026 👁️ 5
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
Svo virðist sem Reykjavíkurborg hafi tekið niður síðu sem var til umfjöllunar hjá Nútímanum fyrr í dag, 6. nóvember. Síðan var opin snemma dagsins 6. ...
Trump names Stephen Miller as new  chief of staff, replacing Susie Wiles
📅 06.11.2026 👁️ 3
Trump names Stephen Miller as new chief of staff, replacing Susie Wiles
Miller, considered the architect of Trump's hard-line immigration policy, will move into the role on Monday.
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
📅 06.11.2026 👁️ 2
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þ...
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
📅 06.11.2026 👁️ 3
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
Spanish football always gives us a captivating backdrop for live betting, with matches shifting between slow-built possession and high pressing, amid ...
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tæ...
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
📅 06.11.2026 👁️ 4
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
Tenerife is facing an orange rain warning on Sunday as storm Bruna moves across the Canary Islands, with up to 100 millimetres of rain expected in 12 ...
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi....
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrotin Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbrot...
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
📅 06.11.2026 👁️ 4
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Í skriflegu svari frá ráðun...
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun ...
„Við þurfum að laga þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 4
„Við þurfum að laga þetta“
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir f...
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
📅 06.11.2026 👁️ 3
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
Prosecutors begin investigating EU funds meant for upgrading the Spanish railway line where a train crash killed 69 people.
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og s...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...
Stjörnugrís kennir Einari Loga um ástand grísanna í myndskeiðinu
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stjörnugrís kennir Einari Loga um ástand grísanna í myndskeiðinu
Fyrra innbrot Einars Loga Péturssonar í gyltubú Stjörnugríss, 11. maí í vor, olli dýrunum hræðslu, óbætanlegum skaða og dauða og er dýraníð.Innbrotið ...
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
📅 06.11.2026 👁️ 3
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
Lögreglan á Suðurnesjum birti Írisi Helgu Jónatansdóttur 12 mánaða nálgunarbann fimmtudaginn 5. nóvember, eftir atvik miðvikudaginn 4. nóvember síðdeg...
Man attacked with machete outside his home in Corralejo
📅 06.11.2026 👁️ 2
Man attacked with machete outside his home in Corralejo
A 25-year-old man has been arrested after allegedly attacking another man with a machete at his home in Corralejo, leaving him with a seven-centimetre...