Verðbólgan gæti verið búin að ná sínum hæstu hæðum og tekið að minnka á næstunni. Þetta sagði Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, í hádegisfréttum RÚV. Una sagði að varasamt væri að lesa mjög mikið í einstakar mælingar. Hún taldi þó jákvæð teikn í verðbólgutölum dagsins.
„Ef fram heldur sem horfir er verðbólgan vonandi búin að toppa núna og þá sjáum við þessa hjöðnun halda áfram.“
Minni verðbólga gæti haft meiri áhrif.
„Hún gæti orðið til þess að Seðlabankinn þurfi ekki að hækka stýrivexti jafn mikið og við vorum áður búin að gera ráð fyrir. Við vorum að gera ráð fyrir 0,5 prósentustiga hækkun í maí en mögulega gæti þetta orðið til þess að þeir hækki bara um 0,25 prósentustig.“
Una sagði að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti skipti ekki sköpum en hefði einhver áhrif. „Við værum með meiri verðbólgu ef það kæmi ekki til þessarar lækkunar á virðisaukaskattinum en eldsneytisverð úti í heimi er bara hreinlega að hækka mjög mikið og meðan það er staðan verður áfram verðbólguþrýstingur til staðar.“
Tölur Hagstofunnar gefa til kynna að undirliggjandi verðbólga sé mögulega að minnka, sagði Una.