Hráolíuverð lækkaði um 2,3 prósent í morgun meðan fjárfestar búa sig undir tíðindi af eðli harkalegra refsiaðgerða Bandaríkjastjórnar gegn Írönum, sem ætlað er að einangra þá fjárhagslega.
Tunnan af Brent Norðursjávarolíu stóð í 92 bandaríkjadölum í morgun. Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar aðgerðirnar efnahagslegan stríðsrekstur. Lækkun varð einnig á hlutabréfamörkuðum í Asíu við opnun markaða í morgun.
Augu heimsins eru á bandaríska fjármálaráðherranum Scott Bessent sem mun tíunda aðgerðirnar gegn Íran á blaðamannafundi í dag. Þeir Trump hvöttu samherja Bandaríkjanna og kínversk stjórnvöld til þátttöku og sögðu hvers þess ríkis sem liðsinnti eða ætti í viðskiptum við Íran bíða harkalegar afleiðingar.
Bessent vildi aðspurður engu svara um hvort Kínverjar yrðu beittir þrýstingi og sagði best að ræða sum mál í einrúmi. Varaforsetinn JD Vance viðurkenndi að varkárni væri þörf enda mætti búast við hörðum viðbrögðum Írana.