Vaxtamunur eykst um hálft prósentustig
Landsbankinn jók hagnað sinn um næstum 4 milljarða á milli ára. „Uppgjör bankans á fyrri hluta þessa árs er sterkt en undir áhrifum hárrar verðbólgu,“ segir bankastjóri en vaxtamunur var 3,4% á tímabilinu.
Vaxtamunur Landsbankans, það er munurinn á útlansvöxtum hans og innlánsvöxtum, var 3,4% á fyrsta helmingi þessa árs. Á sama tímabili í fyrra var hann 2,9%.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýbirtu uppgjöri bankans fyrir fyrri helming ársins 2026. Bankinn gerir ráð fyrir að vaxtamunurinn dragist saman og verði á bilinu 2,9 til 3,1% fyrir árið í heild. Hreinar vaxtatekjur voru 39,8 milljarðar króna og hækka á milli ára en bein áhrif verðbólgu á tímabilinu voru þar mikil.
Landsbankinn skilaði 22,1 milljarði króna hagnaði eftir skatta á tímabilinu, samanborið við 18,3 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 13,4% samanborið við 11,5% árið áður.
Þá kemur fram að reiknaður tekju- og bankaskattur hafi verið 10,1 milljarður króna samanborið við 8,5 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur um 18,3%.
Bankinn greiðir einnig 18,9 milljarða króna í almenna arðgreiðslu og 16,1 …