Þetta kemur fram í tilkynningu veðurfræðings en áætla má að mestu hviðurnar verði á Steingrímsfjarðarheiði, Húnafirði og Skagafirði frá hádegi og fram undir miðnætti. Að sama skapi verði mjög hvasst í austanverðum Öræfum síðdegis og um kvöldið.
Ökumenn sem ætla að ferðast um með tengivagna, á húsbílum eða á hvers kyns ökutæki sem tekur á sig mikinn vind eru beðnir um að fylgjast vel með aðstæðum á vegum en hviður sem þessar eru sér í lagi varhugaverðar fyrir slík ökutæki.