Veðurfræðingur Vegagerðarinnar vekur athygli á vindhviðum sem geta reynst vegfarendum hættulegar.
Búist er við hvassri sunnanátt um vestan- og norðvestanvert landið í dag. Hviður geta farið í allt að 25 til 30 metra á sekúndu á norðanverðu Snæfellsnesi og í Borgarfirði.
Síðdegis og í kvöld hvessir auk þess á Hellisheiði, í Hvalfirði og á Holtavörðuheiði, með hviðum um og yfir 25 metra á sekúndu. Varasamt ferðaveður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsbíla og tengivagna, segir í ábendingu veðurfræðingsins.