Veðurstofan varar við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul sem gert hafa aðkomu að jöklinum varasamari og erfiðari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer um svæðið.
Miklar breytingar hafa átt sér stað við sporð Sólheimajökuls á undanförnum vikum sem gert hafa aðkomu að jöklinum erfiðari, að því er fram kemur í tilkynningu Veðurstofunnar.
Lítið lón hefur myndast austan við jökulsporðinn, íshaft sem liggur að jöklinum hefur þynnst og hætta er á grjóthruni á aðkomuleiðinni að suðaustanverðum jöklinum.
Í ljósi breytinganna hafa ferðaþjónustufyrirtæki fellt niður ferðir til að fyrirbyggja slys á meðan hugað er að nýjum og öruggari leiðum.
Ferðalangar eru einnig hvattir til að skoða brattar hlíðar vel og vera vakandi fyrir merkjum um grjóthrun vegna grjóthrunshættu úr Jökulhaus, fjallinu ofan aðkomuleiðarinnar að suðaustanverðum Sólheimajökli.
„Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir hættunum, fylgi leiðbeiningum, sýni varúð, beri virðingu fyrir því umhverfi sem ferðast er um og hugi að síbreytilegum aðstæðum sem ríkja framan skriðjökla,“ segir í tilkynningunni.
„Það er ekki okkur í hag að setja fólk í óvissu“
Jón Heiðar Andrésson, IFMGA fjallaleiðsögumaður, hefur starfað við jökulinn í nær tvo áratugi. Hann segir aðstæður ekki endilega miklu verri í dag en undanfarin ár. Fjallendið sé þó breytilegt í kringum jökla.
„Það er að breytast frá ári til árs, á milli tímabila, hvort sem í vor eða haust. Núna eru aðstæðurnar einmitt þannig að það er búin að vera mikil og hröð bráðnun í sumar. Aðstæðurnar eru óstöðugar og á meðan við erum í smá óvissu bíðum við bara,“ segir Jón Heiðar.
Leiðsögumenn fylgjast grannt með vendingum á jöklinum, segir Jón Heiðar. Ferðaþjónustufyrirtæki hafa fellt niður ferðir í forvarnarskyni á meðan hugað er að nýjum og öruggum leiðum.
„Það er ekki okkur í hag að setja fólk í óvissu eða að setja fólk í hættu. Það er okkur í hag að skila okkar þjónustu eins faglega og vel og hægt er með sem minnstri áhættu og þess vegna er verið að stíga til baka.“