Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul - Vísir

Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul - Vísir

Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul - Vísir

Vijona fæddist í Litáen og flutti til Íslands aðeins þriggja ára gömul. Fyrstu árin hér einkenndust af rótleysi, fátækt og ofbeldi og um tíma dvöldu þær mæðgur í Kvennaathvarfinu. Í skóla tóku við einelti og fordómar.

„Bíddu, ég er orðin þrefaldur Íslandsmeistari“

Nýlega stóð Vijona í fyrsta sinn fyrir framan sal fullan af fólki og sagði frá lífshlaupi sínu á viðburði UAK, Ungra athafnakvenna. Þar var hún á meðal fyrirlesara ásamt Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, fyrrverandi þingmanni og ráðherra, og Guðrúnu Karls Helgadóttur, biskupi Íslands.

Vijona fór á svið á eftir Áslaugu og segir stressið hafa aukist jafnt og þétt á meðan hún beið eftir að röðin kæmi að henni.

„Ég horfði á Áslaugu tala og hugsaði bara: „Vá, hvað hún er góð.“ Ég varð sífellt meira stressuð og þegar ég var búin að tala þá fannst mér ég ekki hafa náð að segja allt það sem ég vildi koma á framfæri . Mig langaði svo mikið til að sýna: Þetta er ástæðan fyrir því að ég stend hér í dag.“

Tilfinningin sat í henni eftir erindið og Vijona ákvað að skrifa söguna niður og birta hana á TikTok.

„Ég hugsaði að ég yrði eiginlega að deila sögunni minni. Mig langaði að sýna að ég er ekkert fullkomin og að það hefur ýmislegt gerst á leiðinni. Ég ákvað því bara að setja þetta út.“

Eitt atvik úr fitnessferlinum hefur setið sérstaklega í henni. Vijona var að keppa í fyrsta sinn í Háskólabíói þegar hún áttaði sig baksviðs á því að eitt keppnisnúmerið hennar var niðri. Hún hljóp niður stigann á háum fitnesshælum en datt niður  tröppurnar, fékk mar og sár og brúnkan rann af líkamanum.

„Ég sat þarna á gólfinu og var náttúrulega að drepast úr verkjum. Konurnar voru að reyna að laga brúnkuna því hún var öll farin af mér og hafði einhvern veginn lekið niður stigann. Allir stóðu yfir mér, líka keppendurnir, og sögðu: „Þú ert ekkert að fara að standa upp.“ Ein stelpa sem var með mér í flokki sagði meira að segja: Þú getur ekki unnið svona. Ég horfði bara á þau og hugsaði: „Ég kom ekki hingað til að hætta, ég er búin að fara í gegnum allt þetta ferli.“ Svo steig ég upp á sviðið í sársauka, tárin runnu og ég hélt mér í stöðunni í bókstaflega blóði, svita og tárum. Síðan var nafnið mitt kallað upp einu sinni, aftur og svo í þriðja sinn og ég hugsaði bara: „Bíddu, ég er orðin þrefaldur Íslandsmeistari.“

Vijona kunni ekki íslensku þegar hún kom til landsins og upplifði snemma að vera skilgreind út frá uppruna sínum. Hún rifjar meðal annars upp leikskólakennara sem krafðist þess að hún talaði íslensku og síðar að fólk gerði ítrekað ráð fyrir að hún væri pólsk.Vísir/Anton Brink

Þegar Vijona lítur til baka segir hún atvikið lýsa mörgu í sögu sinni. Hún hafi oftar en einu sinni þurft að skipta um stefnu eða byrja aftur.

„Ég var bara: Já, ókei, þetta er eiginlega lífið mitt í hnotskurn. Ég dett niður, stend upp og held áfram.“

Á stöðugu flakki

Vijona er fædd árið 1998 og kom sem fyrr segir til Íslands þriggja ára gömul, ásamt foreldrum sínum. Foreldrar hennar skildu sama ár og fyrstu árin hér voru óstöðug.

Fjölskyldan flutti oft, meðal annars á milli Grafarvogs, Kópavogs og Hafnarfjarðar, og um tíma dvöldu þær mæðgur í Kvennaathvarfinu.

„Ég þurfti að horfa upp á ofbeldi og við vorum mikið á flakki. Við vorum alltaf að skipta um heimili, bjuggum meðal annars í Kvennaathvarfinu og áttum stundum ekki fyrir mat. 

Ég man þetta allt mjög langt aftur, alveg frá því ég var þriggja ára.

Vijona segir að aðstæðurnar hafi orðið til þess að hún lærði snemma að sjá um sig sjálf. Hún man eftir sér einni heima fjögurra ára að steikja egg og síðar þurfti hún meðal annars að elda og sinna heimilisverkum. Hún ólst að mestu upp hjá móður sinni og uppeldisföður og hafði lítil samskipti við líffræðilegan föður sinn. Feðginin tóku aftur upp nánara samband á fullorðinsárum.

Var skipað að tala íslensku

Vijona kunni ekki íslensku þegar hún flutti hingað og eitt fyrsta minningabrotið sem hún á frá Íslandi er úr leikskólanum.

„Ég var fjögurra ára og talaði við kennarann minn á litáísku af því að ég kunni ekki íslensku. Hún fór niður á hnén, hristi mig og sagði bara: Talaðu íslensku. Ég man þetta ennþá og ég var náttúrulega bara lítið barn. Ég skildi ekkert hvað var í gangi.“

Síðar fluttu þær mæðgur til Hafnarfjarðar. Vijona segir að bæði börn og fullorðnir hafi ítrekað gert ráð fyrir að hún væri pólsk og kynni pólsku. Kennari bað hana meðal annars að lesa pólskan texta og annar að koma skilaboðum til pólskrar ræstingakonu.

„Ég kunni enga pólsku en þurfti alltaf að heyra þetta. 

Það var ekki eins og ég væri eitthvað á móti Pólverjum, alls ekki, heldur var fólk bara búið að ákveða hvaðan ég væri. Það hefði alveg verið hægt að spyrja mig.
Umræða um líkama og þyngd hófst snemma hjá Vijonu. Ellefu ára var hún send í tveggja vikna megrunarbúðir í Litháen þar sem æft var nokkrum sinnum á dag og mataræðið var mjög takmarkað.Vísir/Anton Brink

Hún segir slíka fordóma ekki jafn áberandi og þegar hún var yngri en lendir þó enn í aðstæðum sem minna hana á þetta. Fyrir nokkrum mánuðum hafi læknir til dæmis ítrekað viljað tala við hana á ensku þrátt fyrir að Vijona svaraði á íslensku og þær hefðu áður hist.

„Þegar fólk heyrir nafnið mitt, Vijona, þá gerist þetta stundum. Stundum segi ég bara að ég heiti Fíóna, mér er alveg sama. Ég tala náttúrulega fullkomna íslensku.“

Ellefu ára í megrunarbúðum

Umræðan um líkama Vijonu hófst einnig snemma. Hún segist hafa verið með það sem hún lítur í dag á sem venjulega barnafitu en móðir hennar hafi verið smávaxin og talið að dóttirin þyrfti að grennast. Ellefu ára var Vijona send í tveggja vikna megrunarbúðir í Litáen.

„Við æfðum þrisvar til fjórum sinnum á dag og vorum eiginlega bara að borða fisk og hafrabrauð. Á leiðinni þangað keypti ég mér snakk og faldi það á mér. Annað barn sá það og sagði kennaranum og snakkið var tekið af mér. Mér var sagt að ég fengi það aftur í lokin og ég fékk það svo tveimur vikum seinna.“

Á svipuðum tíma fór eineltið að aukast. Vijona byrjaði snemma að mála sig og gekk stundum í fötum móður sinnar og segir eldri krakka hafa gert athugasemdir við útlitið. Á unglingsárunum byrjaði hún snemma að drekka og reykja. Hún segir að þar hafi þörfin fyrir að tilheyra vegið þungt.

„Ég vildi alltaf bara vera með. Mig langaði að eiga vini og taka þátt því mér fannst ég alltaf vera einhvern veginn útilokuð úr hópnum. Svo fór ég að hætta að mæta í skólann og í níunda og tíunda bekk var staðan orðin mjög slæm. Ég var kölluð á fundi og það var farið að tala um að reka mig.“

Vijona kláraði þó grunnskólann og fór í Menntaskólann í Kópavogi. Þar hélt skólakvíðinn áfram og undir lokin þurfti hún að færa hluta námsins í fjarnám.

Ég var bara svo lítil í mér. Ég var ekkert að mæta og þetta var ennþá mjög erfitt.

Endaði á spítala

Á meðan Vijona var í MK fór hún á Dale Carnegie-námskeið. Þar byrjaði hún að segja öðrum frá eigin reynslu og viðbrögðin komu henni á óvart.

„Ég fékk viðurkenningu eftir viðurkenningu eftir viðurkenningu. Fólk grét með mér, knúsaði mig og sagði: Þú átt að opna þig, þetta er ekki eitthvað sem þú átt að fela. Þá fór ég að hugsa að ég væri kannski að hafa einhver áhrif með því að segja söguna mína. Ég áttaði mig líka á því að ég var ekkert ein sem hafði gengið í gegnum eitthvað.“

Í kjölfarið fór Vijona að mæta reglulega í ræktina og skráði sig síðar í keppnisþjálfun. Árið 2018 hóf hún að keppa í fitness og fór síðar á Evrópu- og heimsmeistaramót.

Fitnessið hafði þó aðra hlið. Vijona segir mataræðið í upphafi hafa verið mjög strangt, með litlu af kolvetnum og sykri og miklu af prótín- og sykurlausum vörum. Á sama tíma glímdi hún við uppþembu og mikla magaverki.

„Mér leið alltaf rosalega illa, ég var með verki og grét mikið út af þessu. Á endanum fékk ég næringarskort og endaði uppi á spítala eftir krampakast. Ég vissi ekkert hvað var í gangi og hélt áfram að glíma við þetta eftir að ég flutti út. Svo fór ég smám saman að borða öðruvísi.“

Vijona segir sjálf að hún hafi glímt við átröskun í tengslum við fitnessið. Hún er sérstaklega gagnrýnin á hugtakið „cheat day“, sem var notað yfir dag þar sem hún mátti borða mat sem annars var utan mataræðisins.

„Ég hata þetta orð, af því að þú ert að segja í hausnum á þér að þú sért að svindla. Svo borðarðu kannski bakarísmat, KFC eða Dominos og hugsar að þú hafir gert eitthvað rangt. Ég vil frekar að þetta sé bara dagur eins og hver annar. Svo vaknarðu næsta dag og heldur áfram.“

Á Spáni stofnuði Vijona veitingarekstur sem þróaðist síðar í BRÖNS.Vísir/Anton Brink

Fór til Spánar

Vijona fór síðar í nám tengt þjálfun og lærði meira um meðal annars næringu og svefn. Eftir að hafa fundið fyrir þörf fyrir breytingu ákvað hún að fara utan í nám. Hún sótti fyrst um í Danmörku en fór að lokum til Spánar og hóf sálfræðinám við UCAM.

Námið reyndist ekki það sem hún hafði vonast eftir. Hún ákvað þó að klára fyrsta árið þrátt fyrir að þurfa að endurtaka áfanga og færði sig síðar yfir í fjarnám við Háskólann á Akureyri.

Sambýlismaður hennar, sem hún hefur verið með frá fyrsta ári í MK, fór með henni út og stundaði MBA-nám. Úr lokaverkefni hans kviknaði hugmynd um rekstur á La Zenia.

Planið var í rauninni ekki plan

Þau byrjuðu á litlum sölustað í verslunarmiðstöð og síðar opnuðu þau BRÖNS. Vijona segir þau hafa lært margt jafnóðum og reksturinn þróaðist.

„Planið í rauninni var ekki eitthvað fullkomið plan. Við bara gáfum í hlutina og byrjuðum. Við þurftum að finna út úr öllu sjálf og það var endalaust verið að leysa eitthvað sem við höfðum aldrei gert áður. Fyrsta árið vorum við tvö nánast alltaf sjálf að vinna og þetta varð mjög mikið. Ég man að einn júnímánuð gerði ég um tólf hundruð avókadóbrauð og fimmtán hundruðð acai-skálar, fyrir utan allt hitt á matseðlinum. Ég er enn með ör á handleggjunum eftir að hafa verið að flýta mér með fullt af brauðum inn og út úr ofninum og brenna mig á grindunum. Síðan stækkaði þetta og á endanum vorum við komin með fimmtán starfsmenn. En við vorum líka komin á þann stað að lífið okkar snerist orðið eiginlega bara um vinnuna. Okkur langaði að kaupa okkur íbúð, stofna fjölskyldu og vera nær fjölskyldunni okkar á Íslandi. 

Þetta var skemmtileg upplifun en við fundum að við vildum fara heim.

Þann 3. september tók íslenskur kaupandi ásamt fjölskyldu sinni við rekstrinum. Vijona flutti aftur heim til Íslands í desember.

Orðin „súrkálskonan“

Í lok janúar og byrjun febrúar byrjaði Vijona að birta efni reglulega á TikTok. Hún var þá með um tvö til þrjú þúsund fylgjendur. Í dag er fylgjendahópurinn rúmlega átján þúsund.

Efnið snýst að miklu leyti um mat og innihaldslýsingar, þar sem Vijona skoðar vörur og deilir eigin reynslu eftir fitnessárin.

„Ég er alls ekki að segja við fólk: Þú átt að vera holl. Þetta er meira bara: Veistu hvað er í þessu og hefur það einhver áhrif á þig? Fyrir mér snýst þetta meira um næringu en einhverja hugmynd um fullkomið mataræði. Ég vil bara að fólk næri sig og líði vel.“

Athygli fylgjendanna fór fljótt að sjást utan skjásins. Nokkrum vikum eftir að Vijona hóf birtingarnar kom kona að henni úti í búð með barn sitt og benti á hana.

@vijonasalome Kannski þarftu að fara hugsa betur um næringu / meltingu í staðinn fyrir að vera æfa endalaust, or what? Less is better🤷🏼‍♀️ #wholefoodsísland #íslandtiktok #fyrirþig #fypísland #ísland ♬ original sound - Vijona Salome

„Hún sagði við barnið sitt: „Þetta er hún, þetta er súrkálskonan.“ Þá var þetta allt í einu orðið þannig að fólk var farið að þekkja mig úti í búð! Samt var ég eiginlega nýbyrjuð að birta efni.“

Eftir heimkomuna byrjaði Vijona að birta efni reglulega á íslensku TikTok. Fylgjendum fjölgaði hratt og efnið hennar snýst einkum um mat, innihaldslýsingar og eigin reynslu af mataræði og fitnessheiminum.Vísir/Anton Brink

Efast líka um eigin áhrif

Vijona fær nú reglulega skilaboð frá fólki sem segist hafa tekið upp nýjar venjur eða breytt sambandi sínu við mat eftir að hafa fylgst með henni. Ein kona skrifaði henni að hún hefði lengi glímt við átröskun en að efnið hefði hjálpað henni.

Hún segir slík skilaboð jafnframt vekja hjá sér spurningar um þá ábyrgð sem fylgir því að ná til margra.

„Maður efast stundum um sjálfan sig og hugsar: Er ég að gera eitthvað vitlaust, er ég að setja einhverja pressu á fólk? Það síðasta sem ég vil er að ýta undir átröskun hjá einhverjum, sérstaklega af því að ég hef sjálf verið þar. Ég þarf því líka að hugsa um hvernig ég set hlutina fram.“

@vijonasalome Heilsudagar framundan… en ég er með nokkrar spurningar fyrir þessar „heilsuvörur“ 🤣 Ég ætla skoða allar vörurnar næstu daga og segja hvað ég mæli með og hvað ekki… eða sem er algjör óþarfi að mínu mati 🤷🏼‍♀️ #fyrirþig #íslandtiktok #wholefoodsísland #ísland ♬ original sound - PATR!K

Ekki allir sammála

Aukin athygli á TikTok hefur ekki aðeins verið jákvæð. Vijona segir meðal annars næringarfræðing hafa gert sérstakt myndband þar sem hann gagnrýndi hana og að henni hafi fundist gagnrýnin fara út fyrir málefnið og yfir í persónulegt grín. Þá hafi tvö fyrirtæki haft samband og óskað eftir því að hún fjarlægði myndir af vörum þeirra úr efninu sínu.

Hún segist ekkert hafa á móti því að fólk sé henni ósammála. Hún vilji hins vegar ekki sjálf taka þátt í því að rakka aðra niður, nokkuð sem hún tengir meðal annars við eigin reynslu af einelti.

„Ég skil algjörlega að vera ekki sammála hlutum. En ég myndi aldrei, aldrei nokkurn tímann, setja eitthvað á netið og rakka aðra manneskju niður, þó að ég sé með sterkar skoðanir. 

Kannski er það líka af því að ég hef sjálf upplifað einelti og veit hvernig það er að líða svona illa. 

Ég fæ ekkert út úr því að gera öðrum það sama. Ég ætla alltaf að vera góða manneskjan.“

UFyrirlesturinn hjá ngum athafnakonum varð kveikjan að því að Vijona sagði alla söguna sína opinberlega.Vísir/Anton Brink

Fram undan er svo verkefni sem tengir á vissan hátt saman upphaf og nútíð í sögu Vijonu. Í október er hún að fara að kenna á Dale Carnegie-námskeiði fyrir 13 til 15 ára unglinga. Á sínum tíma var það einmitt á Dale Carnegie-námskeiði sem hún, þá óöruggur menntaskólanemi sem lýsir sér sem „svo lítilli í sér“, byrjaði að segja öðrum frá því sem hún hafði gengið í gegnum.

Síðar kom hún aftur að námskeiðinu sem aðstoðarmaður. Þá gekk móðir einnar stúlku að henni og sagði að dóttir hennar hefði talað mikið um Vijonu og að hún hefði hjálpað henni.

Nú er Vijona að fara aftur, að þessu sinni sem kennari.

„Mér finnst þetta svo ótrúlega gefandi. Þegar ég var aðstoðarmaður á Dale kom ein mamma að mér og sagði: „Stelpan mín er búin að tala svo mikið um þig, þú hefur hjálpað henni ógeðslega mikið.“ Ég man að ég var bara: „Vá.“ Þegar ég fór sjálf á Dale var ég svo lítil í mér og þar byrjaði ég í raun að segja söguna mína og fatta að hún gæti haft einhver áhrif á aðra. Núna er ég að fara að kenna þarna fyrir þrettán til fimmtán ára og mér finnst það mjög sérstakt. Ég er samt ekkert komin á einhvern stað þar sem allt er fullkomið, langt frá því. Ég er enn að læra og það koma alltaf hlutir upp. En það er kannski það sem ég hef lært mest af öllu þessu. Ég dett niður, ég stend upp og ég held áfram.“

#gömul #megrunarbúðir #send #var #ára


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262937256d/var-send-i-megrunarbudir-11-ara-gomul

📰 Aðrar fréttir

Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
📅 06.11.2026 👁️ 1
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færs...
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið va...
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
📅 06.11.2026 👁️ 1
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
The US president's promotion of Miller, a loyal partisan firebrand to be his new chief of staff sets up likely clashes with Congress.
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ...
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
Ung móðir í New York kastaði upp af geðshræringu þegar hún heyrði hversu vægan fangelsisdóm maðurinn sem stakk hana 22 sinnum með hnífi hafði hlotið. ...
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
Einar Logi Pétursson hefur birt umdeild myndskeið úr tveimur svínabúum Stjörnugríss þar sem meðal annars mátti sjá dauð svín og með áverka.  Sjá einni...
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
📅 06.11.2026 👁️ 1
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
Það er aldrei skemmtilegt að skilja, sérstaklega þegar deilt er um skiptingu eigna. Að meginreglu er eignum skipt í helminga eftir svokallaðri helming...
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
📅 06.11.2026 👁️ 2
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
The attack happened last month at the family home on the outskirts of Waterford in the Republic of Ireland.
Snjórinn féll á Dönsku kránni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Snjórinn féll á Dönsku kránni
Sala á jólabjór Tuborg hófst í kvöld, sem er orðinn hluti af jólaundirbúningi margra. J-dagurinn, sem er stytting á julebryg dag, eða „jólabjórsdagur“...
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
📅 06.11.2026 👁️ 2
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
The 82-year-old was arrested in Florida after the FBI searched two Los Angeles-area storage units he rented.
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
Garpur Elísabetarson og dóttir hans báru bæði vitni fyrr í vikunni þar sem þau greindu frá meintu umsáturseinelti af hálfu Írisar Helgu. Sögðu þau frá...
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
Snorri Jakobsson hagfræðingur segir að hræðsla við hertar reglugerðir gagnvart gagnaverum og gervigreindarfyrirtækjum valdi fallinu sem varð á gengi b...
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, tekur upp hanskann fyrir Sjálfstæðismenn vegna þeirra fjölmörgu fyrirspurna sem Guðlaugur Þór Þór...
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand, sem hefur verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot, var aðeins 17 ára þegar faðir hans keypti vændi...
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
📅 06.11.2026 👁️ 3
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
Einar Logi Pétursson, sem var handtekinn vegna innbrota og sleppinga dýra á nokkrum búum á Kjalarnesi, birti myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjör...
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í viðtali Heimildarinnar við foreldra Hönnuh, þau Samönthu og Gregory Lane.  Hannah Jane Large lést ásamt tveimur ö...
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
Ólga og mótmæli hafa verið í Paragvæ í vikunni eftir að seðlabankinn tók yfir stærsta banka landsins, Ueno-banka.Nær helmingur Paragvæ-búa var í viðsk...
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
📅 06.11.2026 👁️ 4
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands segir aðbúnað dýra á búi Stjörnugríss ekki standast núgildandi reglugerð um velferð sví...
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
Þetta kemur fram í farsóttarfréttum embættis landlæknis þar sem segir að þátttaka í bólusetningum gegn Covid-19 bólusetningum hafi farið minnkandi og ...
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
Ferðalög eru ekki alltaf einföld. Sérstaklega ekki til framandi og fjarlægra landa þar sem aðstæður eru ekki eins og fólk er vant. Fyrir marga ferðame...
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
📅 06.11.2026 👁️ 5
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
Testósteróngildi að degi til lækkuðu um 10-15% hjá tíu ungum, heilbrigðum körlum sem fengu aðeins fimm tíma svigrúm til svefns á nóttu í tilraun við C...
Kourani er enn að hrella Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 4
Kourani er enn að hrella Íslendinga
Sprengjuhótanir hafa borist opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum undanfarna daga, en málin eru til rannsóknar lögreglu. RÚV greinir frá því ...
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
📅 06.11.2026 👁️ 2
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
The Duke of Sussex and other public figures lost a High Court case against the publisher of the Daily Mail and Mail on Sunday.
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
 „Mér er ánægja að tilkynna að Stephen Miller, núverandi aðstoðarstarfsmannastjóri Trump-stjórnarinnar og einn af mínum traustustu ráðgjöfum, verður s...
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
Þær Katrín Lilja, Guðlaug Esther, Bergdís, Klara og Katrín Líf skipa danshópinn Dans án hindrana.Þær eru á aldrinum 11 til 18 ára, æfa hjá Danslistars...
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
Einar Logi hefur vakið mikla athygli eftir að hann birti tvö myndskeið úr svínabúum Stjörnugríss á Instagram og Facebook þar sem meðal annars má sjá d...
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Saksóknarar höfðu farið fram á dauðarefsingu gegn Mackenzie og lífstíðardóm fyrir hina 28. Sum barnanna voru bundin á meðan þau sveltu til dauða. Yfir...
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
📅 06.11.2026 👁️ 5
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
Svo virðist sem Reykjavíkurborg hafi tekið niður síðu sem var til umfjöllunar hjá Nútímanum fyrr í dag, 6. nóvember. Síðan var opin snemma dagsins 6. ...
Trump names Stephen Miller as new  chief of staff, replacing Susie Wiles
📅 06.11.2026 👁️ 3
Trump names Stephen Miller as new chief of staff, replacing Susie Wiles
Miller, considered the architect of Trump's hard-line immigration policy, will move into the role on Monday.
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
📅 06.11.2026 👁️ 2
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þ...
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
📅 06.11.2026 👁️ 3
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
Spanish football always gives us a captivating backdrop for live betting, with matches shifting between slow-built possession and high pressing, amid ...
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tæ...
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
📅 06.11.2026 👁️ 4
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
Tenerife is facing an orange rain warning on Sunday as storm Bruna moves across the Canary Islands, with up to 100 millimetres of rain expected in 12 ...
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi....
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrotin Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbrot...
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
📅 06.11.2026 👁️ 4
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Í skriflegu svari frá ráðun...
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun ...
„Við þurfum að laga þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 4
„Við þurfum að laga þetta“
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir f...
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
📅 06.11.2026 👁️ 3
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
Prosecutors begin investigating EU funds meant for upgrading the Spanish railway line where a train crash killed 69 people.
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og s...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...