Tveir varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í dag.
Valdimar Breiðfjörð Birgisson settist á þing fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. Júlíus Viggó Ólafsson hefur tekið sæti fyrir Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins.
María Rut Kristinsdóttir verður starfandi þingflokksformaður Viðreisnar í fjarveru Sigmars.
Diljá Mist staðfesti við mbl.is í dag að hún væri í veikindaleyfi. Vísir hafði eftir starfandi þingflokksformanni Viðreisnar að það sama gilti um Sigmar.