Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í Reykjavík hefur átt í viðræðum við oddvita annarra flokka síðustu daga, en til umræðu hefur meðal annars verið myndun meirihluta Sjálfstæðisflokksins með Miðflokki einum, Miðflokki og Framsókn eða Viðreisn og Framsókn.
Sömuleiðis hefur verið rætt um möguleikann á fjögurra flokka meirihluta Sjálfstæðisflokks, Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknar.
Fréttastofa mun fylgjast með gangi mála í allan dag. Ef vaktin birtist ekki að neðan er ráð að endurhlaða síðunni.