Þá fjöllum við um miklar hækkanir á olíuverði og hættuna á frekari hækkunum vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran.
Verðbólgan jókst enn og aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir aðilar vinnumarkaðarins þurfa að hætta að benda hver á annan og taka höndum saman til að ná henni niður.
Kona sem slasaðist alvarlega á rafhlaupahjóli vegna sandgryfju við gangbraut segir ótrúlegt að ekki hafi verið brugðist við ábendingum um lélegan frágang. Oddur Ævar kíkti á vettvang slyssins í Breiðholti.
Þá segjum við frá fyrsta íslenska liðinu sem tekur þátt í Genuine Cup, knattspyrnumóti fyrir fólk með þroskahamlanir.
Þetta og meira til í fréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis.