Elina Valtonen utanríkisráðherra Finnlands hvetur í yfirlýsingu sem hún birti í morgun öll ríki Evrópusambandsins til að hætta útgáfu ferðamannaáritana til rússneskra ríkisborgara þar til stjórnvöld láta innrásarstríðinu í Úkraínu lokið.
Valtonen vill að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins setji strangari viðmiðanir um vegabréfsáritanir og geri nauðsynlegar breytingar á löggjöf sambandsins svo innleiða megi bann við þeim.
„Innrásarstríð Rússa hefur nú staðið á fimmta ár. Það er ekki réttlátt að Rússar geti ferðast til Evrópu og notið frelsis hér meðan leiðtogar þeirra varpa sprengjum á heimili Úkraínumanna,“ segir í yfirlýsingu Valtonen.
Hún brýndi jafnframt aðra leiðtoga ríkja Evrópusambandsins til að þrýsta bréflega á framkvæmdastjórnina að banna þegar á þessu ári Schengen-áritanir til allra í innsta hring Vladimírs Pútín forseta, rússneska íþróttamenn og hermenn, núverandi og fyrrverandi.
Á seinasta ári voru rúmlega 470.000 ferðamannaáritanir gefnar út til rússneskra ríkisborgara fyrir löndin 29 á Schengen-svæðinu. Margar þeirra voru ætlaðar fyrir fleiri en eina komu þeirra til landanna.
Landamæri Finnlands og Rússlands eru 1.340 kílómetra löng og þarlend stjórnvöld hættu 2022 að gefa út vegabréfsáritanir vegna ferðalaga Rússa sem ekki teldust nauðsynleg. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, lagði í september til að endurskoða ferðamannaáritanir til að sporna við fjölþáttaárásum Rússa.