Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir
Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö - Vísir
📅 2026-04-28 18:31:52👁️ 8 lesið
Húsnæðipakki II svari ekki bráðavanda byggingamarkaðarins að mati Jóhönna Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins. Stjórnvöld hefðu átt að nota pakkann til að liðka fyrir uppbyggingu strax.Ríkisstjórnin og Reykjavíkurborg kynntu í dag áform um uppbyggingu á sex ríkisreitum og í ríkiseignum í Reykjavík. Gert er ráð fyrir 220 íbúðum í Borgartúni, 90 við Grensásveg, 100 á efri hluta Laugavegar, 300 við Laugarnesveg, 90 við Seljaveg og 400 til 600 á landi austan Korpúlfsstaða, á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra undirrituðu samkomulag um íbúðauppbyggingu í dag. Samtals eru þetta 1.200 til 1.400 íbúðir. Hluti þeirra verður í nýbyggingum en einnig á að breyta húsnæði í eigu ríkisins í íbúðir. Verkefnin eru mislangt komin, íbúðafjöldinn getur breyst í skipulagsferlinu og reitirnir fara í frekari undirbúning eftir að uppbyggingaraðilar hafa verið valdir.
„Fyrstu viðbrögð voru ákveðin vonbrigði“
Jóhanna segir að pakkinn skili ekki nægum svörum við stöðunni sem byggingargeirinn standi frammi fyrir núna.„Fyrstu viðbrögð voru ákveðin vonbrigði,“ segir Jóhanna.Reitirnir sem kynntir voru í dag eru margir inni í þéttri byggð og eiga eftir að fara í gegnum skipulagsferli. Reynslan sýnir að slíkur undirbúningur getur tekið tvö til þrjú ár.„Þetta eru flóknar lóðir og það tekur langan tíma að skipuleggja þetta,“ segir hún.
Vill að stjórnvöld taki á bráðavandanum
Í pakkanum er lögð áhersla á aukið lóðaframboð til næstu ára og hagkvæmt húsnæði fyrir leigjendur, námsmenn, eldra fólk og tekjulægri hópa. Tuttugu til þrjátíu prósent íbúðanna eiga að vera hagkvæmar íbúðir, meðal annars almennar íbúðir, stúdentaíbúðir, íbúðir Félagsbústaða, búseturéttaríbúðir, íbúðir fyrir eldra fólk og íbúðir sem falla undir hlutdeildarlán.Jóhanna segir að stjórnvöld hefðu fremur átt að beina sjónum að því sem tefji uppbyggingu og sölu í dag.„Við hefðum viljað sjá að það væri frekar tekið á þessum bráðavanda sem byggingamarkaðurinn er í núna,“ segir hún.Samtök iðnaðarins hafa lengi varað við áhrifum hærri gjalda og aukins kostnaðar á nýbyggingar. Jóhanna segir stöðuna þrengja að bæði kaupendum og þeim sem byggja.„Gjaldskrár sveitarfélaganna hafa hækkað gríðarlega undanfarin ár. Stjórnvöld eru búin að boða frekari skattahækkanir á byggingariðnaðinn sem við höfum viljað sjá þau hætta við á þessum tímapunkti,“ segir Jóhanna.
Óseldar íbúðir tefji næstu verkefni
Að mati samtakanna halda erfið lánþegaskilyrði aftur af sölu nýbygginga og tefja þar með frekari uppbyggingu. Ef kaupendur komast ekki í gegnum greiðslumat sitja íbúðir lengur óseldar.„Lánþegaskilyrði Seðlabankans eru mjög erfið um þessar mundir og vextir gera kaupendum erfitt fyrir,“ segir Jóhanna.Hún segir afleiðingarnar þegar sýnilegar á markaðnum.„Þar af leiðandi situr markaðurinn uppi með mikið af óseldum íbúðum,“ segir hún.
Vara við milljóna hækkun á hverja íbúð
Jóhanna saknar þess sérstaklega að ekki hafi verið tekið á boðuðum skattahækkunum á byggingargeirann. Þar vísar hún til áforma um að hætta endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna á byggingarstað.„Við erum að áætla að þetta muni hækka byggingarkostnað um tvær og hálfa til þrjár milljónir per hundrað fermetra íbúð ef af verður,“ segir hún.Að mati Samtaka iðnaðarins ganga slík áform gegn markmiðum um aukið framboð. Hærri byggingarkostnaður skili sér annaðhvort í hærra verði til kaupenda eða minni hvata til að ráðast í ný verkefni.
Segir pakkann aðeins ná utan um hluta vandans
Jóhanna segir aukið lóðaframboð skipta máli, en að það leysi ekki stöðu allra sem þurfi inn á húsnæðismarkaðinn. Þar þurfi líka að horfa til fólks sem reynir að kaupa á almennum markaði án sértækra úrræða. Eftir standi stór hópur á markaði þar sem kostnaðurinn fari hækkandi.„Eins og mál eru núna er stór hluti kaupenda að fara inn á markað sem er með síhækkandi gjaldtöku og skattahækkanir sem hafa áhrif á byggingarkostnað,“ segir hún.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherr, hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum með það fyrir stafni að fækka ...
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau ei...
Barbara Barrie á að baki langan feril í sjónvarpi, kvikmyndum og á sviði. Hún var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 1979 fyrir hlutverk s...
Hirti J. Guðmundssyni, sagnfræðingi og alþjóðastjórnmálafræðingi, hefur verið sagt upp störfum á Hagstofunni.Hjörtur hefur verið einn mest áberandi pi...
Stólpagrín hefur verið gert að Vladímír Pútín Rússlandsforseta eftir að mynd birtist af honum með Daniel Chapo, forseta Mósambík.Breska blaðið Metro g...
„Á árunum 1972-1999 starfaði ég sem skrifstofustjóri hjá samtökum útgerðarmanna, sem voru til húsa á II. hæð í Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, Reykjavík. H...
Íslendingur á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann veittist að manni í leigubifreið fyrir utan Kringluna um miðj...
Hirti J. Guðmundssyni, einum mest áberandi andstæðingi ESB aðildar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í sumar, hefur verið sagt upp störfum á Hags...
Spænsku konungshjónin, Filippus og Letizia, heimsækja í allan dag það fólk sem liggur á háskólasjúkrahúsinu í borginni Toledo eftir að hraðlest var ek...
Nýtt lyf bætir horfur hjá konum með útbreitt brjóstakrabbamein Fréttin29. október 2026Heilbrigðismál, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skr...
Spænska skipafélagið Boluda Shipping og Samskip undirrituðu kaupsamning á Samskipum og dótturfélögum þess í gær. Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg K...
Fjórðungsþing Vestfirðinga skorar á innviðaráðherra að endurskoða skilyrði þess að Breiðafjarðarferjan Baldur sé nýtt sem varaskip fyrir Vestmannaeyja...
Dróninn var þotuknúinn en þeir sjálfsprengidrónar hafa gert Úkraínumönnum erfitt að undanförnu, þar sem þeir fljúga mun hraðar en eldri drónar Rússa o...
Tónlistarmaðurinn Stevie Wonder reynir nú að bera fyrrverandi kærustu út húsi í hans eigu. Hún hefur búið þar leigulaust í fjörutíu ár.Miðillinn TMZ g...
Mannlíf greindi fyrst frá málinu. Á vef héraðsdómstólanna má sjá að málið er skráð sem skuldamál og verður tekið fyrir að morgni dags mánudaginn 2. n...
Vilhelm Jónsson skrifar: Hvað gerir fjölskylda þegar skuldirnar vaxa, þakið lekur og nauðsynlegar viðgerðir bíða?Hún forgangsraðar.Hvað gera íslensk s...
„Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, að láta Ísland standa án pólitískrar baktryggingar...
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vill að trúarleiðtogar á borð við Muhammad Taqi Usmani verði stöðvaðir á landamærunum með sam...
Eini framleiðandi hamsatólgar fær framhaldslíf því fyrirtækið Stóruvellir hefur verið selt. Nýir eigendur ætla að halda framleiðslunni áfram en í sept...
Breytingin þýðir að Icelandair hyggst nýta stórar farþegaþotur í áætlunarflugi sínu til Ilulissat í stað hinna 37-sæta Dash 8 Q200. „Já, við gerum ráð...
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu er greint frá samantekt stjórnenda bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu spítalans en hún bendir til þess að ...
Eldur logar í þremur olíuskipum á Hormússundi eftir að þau sigldu á tundurdufl samkvæmt tilkynningu íranska byltingarvarðarins. Skipin hafi verið á ól...
Hjónin Veigar Margeirsson og Sigríður Ragna Jónasdóttir ræddu sögu sína í Bítinu á Bylgjunni. Tilefnið er fjörutíu ára Nýrnafélagsins. Sigríður útskýr...
Kaffivagninn hefur staðið við Grandagarð frá árinu 1960 en kaffihúsið var upphaflega stofnað árið 1935 en þá á öðrum stað. Framkvæmdir hófust 4. apríl...
Jólahlaðborðin hefjast 13. nóvember og daginn eftir verður fyrsti jólabrönsinn borinn fram. Að sögn Daníels Friðrikssonar, eiganda og framkvæmdastjóra...
Þeir nemendur sem vilja stunda grunnám í alþjóðlegu námi í menntunarfræði og grunnám á hugvísindasviði þurfa að greiða minnst eða 1,450 milljónir krón...
Þeim dómi áfrýjaði forsetinn fyrrverandi en saksóknarar áfrýjuðu honum einnig og vildu að Yoon yrði dæmdur til dauða en ekki í lífstíðarfangelsi. Sú á...
Ekkert sæti fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu – Kreml Fréttin29. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Yury Ushakov. Evrópskum þjóð...
Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir frá endalokum rannsóknar á andláti Hayden Panettiere sem lést á heimili sínu í Greenville í Suður-Karólínu þann 16....
Hlutabréf Google-móðurfélagsins hrynja um 10 prósent – olíuverð áfram í hæstu hæðum Fréttin29. október 2026Erlent, MarkaðurLeave a Comment Órói hefur ...
Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada Fréttin29. október 2026Erlent, Evrópusambandið, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Ekkert v...
Sambandið í svefnherberginu á það til að verða fyrir skakkaföllum þegar hasarinn í lífinu tekur öll völd. Þegar kynlífstól koma við sögu þá getur ýmis...
Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að Vigdísarverðlaunin séu árlega veitt einstaklingi sem brotið hafi blað með störfum sínum í þágu tungumála, m...
Atli Bollason lætur nýjan meirihluta Reykjavíkurborgar fá það óþvegið í harðorðum pistli þar sem hann líkir vinnubrögðum borgarstjórnar við aðgerðir a...
Vance hefur samband við Íran – Trump neitar að friðarviðræður séu hafnar að nýju Fréttin29. október 2026ErlentLeave a Comment JD Vance, varaforseti Ba...
Eftir sjö farsæl ár sem fararstjórar Úrvals Útsýnar í Madonna hafa Dinna og Helgi ákveðið að halda á vit nýrra ævintýra. Við keflinu taka Dóra, leikko...
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán Vísitala neysluverðs rís um 0,44 prósent í október, aðallega vegna hærra eldsneytisverðs. Stríðsreks...
Ljósmyndari fréttastofunnar Anton Brink skellti sér á vettvang á þriðjudag þegar verkið við að draga brúna yfir ána hófst formlega. Sjá má á myndefnin...
Hættan sem fylgir hraðakstri ungmenna og ungir vegfarendur verða í brennidepli á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember. H...
Verðbólgan stendur í stað Vísitala neysluverðs hækkar um 0,44 prósent á milli mánaða en verðbólga á tólf mánaða grundvelli breytist ekki. Verð...
Þrír karlmenn hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu í Reykjavík í ágúst 2023. Einn þeirra átti að ...
Verðbólgan var 5,9 prósent í október. Það er jafnmikil verðbólga og í síðasta mánuði.Eldsneytisverð hefur hækkað áfram og það veldur meiri verðbólgu e...
Háskóli Íslands hefur birt yfirlit yfir skólagjöld sem erlendir nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða að greiða til að stunda nám ...
Arna útskýrir að peptíð séu stuttar amínósýrukeðjur sem virka svona eins og boðefni í líkamanum sem geta svo haft alls konar áhrif og afleiðingar. „Vi...
Frumvarpið má finna í samráðsgátt stjórnvalda en ráðherra leggur til að áfram verði notast við starfsheitin vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknar...
Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá, gagnrýnir utanríkisráðuneytið harðlega í færslu á X. Hann segir „firru“ hafa gripið um sig í ráð...
Dómur var kveðinn upp yfir þremur karlmönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna íkveikju í Tesla-bíl lögreglukonu. Allir voru þeir sakfelldir. Tveir...