Billy Evans, unnusti fjársvikarans Elizabeth Holmes, neitar því að hafa verið á kókaíni við tökur á heimildarmyndinni „You Can See Everything“. Í myndinni má meðal annars sjá hann allsberan og með roða í nösum.Miðillinn TMZ greinir frá þessu.Billy Evans, unnusti Elizabeth Holmes síðan árið 2018, segist ekki hafa verið á kókaíni þegar verið var að taka upp hina umtöluðu heimildarmynd sem sýnir líf fjölskyldunnar áður en hún hóf afplánun fyrir fjársvik. Holmes er að afplána rúmlega 10 ára fangelsisdóm fyrir svik tengd blóðskimunarfyrirtæki hennar Theranos.
Unnusti Elizabeth Holmes spurður út í nefroðann í heimildarmyndinni – „Ég hef aldrei verið aðdáandi“