„Það var ágreiningur á milli tveggja aðila, líkamsárás og einhverjar hótanir,“ segir Jóhann Olsen, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra en Rúv greinir fyrst frá og herma heimildir þeirra að atvikið hafi átt sér stað við Gránufélagsgötu. Einn var handtekinn í aðgerðunum en bæði lögreglan og sérsveitin voru á vettvangi. Hinn var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn í lífshættu. Fyrstu aðgerðir hófust um klukkan tíu og lauk þeim á öðrum tímanum í nótt.Í dag verða þeir sem komu að málinu yfirheyrðir og næstu skref metin. Í umfjöllun Rúv segir að lögreglan hafi verið með mikinn viðbúnað þegar hæst lét.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér eða tölvupóst á ritstjorn@visir.is.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér eða tölvupóst á ritstjorn@visir.is.