Björgunarsveitir eru að hefja leit á ný að ferðamanni sem er talinn týndur í nágrenni við Háafoss. Maðurinn skilaði sér ekki á gististað í gær og hófst leit að honum í kjölfarið.
Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg leituðu nærri 200 félagar björgunarsveita mannsins í gærkvöldi fram í myrkur án árangurs.
Þyrla LHG var einnig nýtt við leitina ásamt fjölda dróna og gönguhópa. Aðstæður eru um margt erfiðar á svæðinu, krapi og drulla þar sem frost er að fara úr jörðu og svæðið nokkuð erfitt yfirferðar.